Flokkur: Faðirinn elskar þig og mig

03.06.2008 00:16

Faðirinn elskar þig og mig

Guð Faðir elskar okkur og hefur tilgang og áætlun með líf okkar. Hann skapaði okkur, hann var á undan öllu og vegna hans er allt til. Trúum við þessu og að hann vilji okkur aðeins það besta?

Áður en ég eignaðist trú voru ákveðnar aðstæður í lífi mínu búnar að leiða mig langt af þeirri braut sem Guð hafði áætlað fyrir líf mitt en í kærleika sínum er hann sífellt að leiða mig lengra og lengra inn á þá braut sem Hann hafði fyrirbúið handa mér. Því að Hann hefur fyrirætlun til heilla en ekki til óhamingju fyrir mig og þig. Ýmislegt hefur þvælst fyrir á þessari braut, en Guði sé lof fyrir náð Hans og þolinmæði. Hann hefur ekki gefist upp á mér af því að Hann elskar mig og þráir að ég sé heil og heilshugar fyrir hann.

Undanfarið hefur Guð verið að kenna mér um föðurhjarta sitt og hvernig Hann elskar okkur. Ég veit að Guð er að eiga þetta við fleiri og reyndar trúi ég því að þetta sé efni sem Guð er að tala vítt og breitt um heiminn. Hann vill opinbera fyrir okkur hver hann er í raun og veru. Hann er ekki einhver fjarlægur faðir sem situr uppi á himninum og bíður eftir að okkur verði á þannig að hann geti refsað okkur, heldur elskar hann okkur og agar -þannig að við vöxum og þroskumst í þekkingunni á honum.

Stundum höfum við þessa mynd af ströngum - jafnvel refsandi Guði vegna jarðneskrar föður- eða móðurímyndar okkar eða vegna annarra yfirvalda sem við höfum verið undir. Við eigum auðveldar með Jesú því að Hann kom sem maður.

Orð Guðs segir:

Því að ég þekki þær fyrirætlanir, sem ég hefi í hyggju með yður - segir Drottinn -fyrirætlanir til heilla, en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð. Þá munuð þér ákalla mig og fara og biðja til mín, og ég mun bænheyra yður. Og þér munuð leita mín og finna mig. Þegar þér leitið mín af öllu hjarta,vil ég láta yður finna mig - segir Drottinn - og snúa við högum yðar. Jeremía. 29:11-14

Því að ég er þess fullviss, að hvorki dauði né líf, englar né tignir, hvorki hið yfirstandandi né hið ókomna, hvorki kraftar, hæð né dýpt, né nokkuð annað skapað muni geta gjört oss viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú Drottni vorum. Jóh. 8:38-39

Úr fjarlægð birtist Drottinn mér: "Með ævarandi elsku hefi ég elskað þig. Fyrir því hefi ég látið náð mína haldast við þig. Jeremía 31:3

Forréttindi að þekkja Guð

Mér finnst ég og við öll vera forréttindafólk að fá að þekkja Guð og ég trúi því að það sé svo mikil nauðsyn fyrir okkur að skilja þennan sannleika.

Ég var að horfa á þátt í sjónvarpinu (dr. House) um daginn. Einn læknirinn hafði misgreint sjúkdóm og gefið sjúklingi ranga meðferð. Þetta leiddi til þess að sjúklingurinn lést. Læknirinn var að vonum alveg niðurbrotinn. Samlæknir hans vildi hughreysta hann og sagði "Þegar mér líður illa tala ég við Guð og læt sem Hann heyri". Mér þótti þetta afar sorglegt "Læt sem Hann heyri" Það er sorglegt að fólk skuli ekki þekkja Guð persónulega og eiga samfélag við hann. Ég velti því reyndar fyrir mér hvort þetta eigi jafnvel við aðila innan kirkjunnar!

Guð heyrir

Við erum ekki alltaf viss um að Guð heyri en Biblían segir að eyra hans sé ekki svo þykkt að Hann heyri ekki. Og á öðrum stað stendur,

Mínir sauðir heyra raust mína, og ég þekki þá, og þeir fylgja mér. Jóh 10:27 Þannig að við getum líka heyrt í honum. Guð er stöðuglega að tala - en erum við að hlusta? (Job. 33:14)

Guð hefur kallað okkur til innilegs og náins samfélags við sig. Hann gleðst yfir okkur og segir okkur að gleðjast yfir sér líka, sbr. Orðin í sálmi 37 vers 3-5.

Treyst Drottni og gjör gott, bú þú í landinu og iðka ráðvendni,  þá munt þú gleðjast yfir Drottni, og hann mun veita þér það sem hjarta þitt girnist. Fel Drottni vegu þína og treyst honum, hann mun vel fyrir sjá.

Í byrjun síðasta árs, sagði Guð við mig að við þráum Hann ekki nóg eða látum okkur nægja svo lítið, Hann vill gefa okkur svo miklu meira af sér. Og af því að Guð er persónulegur Guð talaði Hann til mín á þann hátt sem ég skil. Hann sagði við mig að þegar mig langar mjög mikið í súkkulaði þá læt ég mér ekki nægja einn mola hvað þá bara í milsnuna sem verður eftir þegar súkkulaðið er brotið í bita. Ég vil mikið af súkkulaði þegar sá gállinn er á mér...

Hjarta mitt þráir að við sem kirkja og brúður tökum við öllu sem tilheyrir okkur og lifum Guði til fulls. Allt of oft þá lifum við eins og munaðarleysingjar þegar við erum í raun og veru synir og dætur Guðs.

Ekki mun ég skilja yður eftir munaðarlausa. Ég kem til yðar. Jóh 14:18.

Guð hefur sjálfur sagt: "Ég mun ekki sleppa af þér hendinni né yfirgefa þig." Heb 13:5

Það að vera synir og dætur Guðs þýðir að við erum elskuð óverðskuldað og skilyrðislaust. Ekki vegna verka okkar eða afreka heldur fyrir það að vera við, ég og þú. Við erum sköpuð til samfélags við Hann.

Hvatning mín til okkar allra er eftirfarandi, Guð þráir meira að eiga samfélag við okkur en við við Hann. Hann vill ekkert frekar en að við meðtökum allt sem hann hefur fyrir okkur og að við lifum honum til fulls.

Ég bið Guð að blessa okkur öll og leiða okkur inní dýpra og innilegra samfélag við hann.

Alís Inga Freygarðsdóttir

    Flettingar í dag: 43
    Gestir í dag: 27
    Flettingar í gær: 63
    Gestir í gær: 23
    Samtals flettingar: 131825
    Samtals gestir: 40145
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 19:06:36