Flokkur: Að dreyma stóra drauma

03.06.2008 00:00

Að dreyma stóra drauma

Hverjir eru draumar þínir?

Hvað hefur þig alltaf dreymt um að gera?

Í popstulasögunni 2. Kafla og frá 17 versi stendur:


"Það mun verða á efstu dögum, segir Guð,

að ég mun úthella anda mínum yfir alla menn.

Synir yðar og dætur munu spá,

ungmenni yðar munu sjá sýnir

og aldraða yðar á meðal mun drauma dreyma.

Jafnvel yfir þræla mína og ambáttir mínar

mun ég á þeim dögum úthella anda mínum,

og þau munu spá."


Erdna Varðardóttir


 

Þegar ég les þetta vers verð ég mjög spent. Því ég trúi því ekki að verið sé að tala um dagdrauma eða drauma sem mann dreymir í svefni. Nei ég trúi því að Guð vilji úthella anda sínum yfir allar kynslóðir, að allar kyndlóðir muni finna að þær séu mikilvægur hlekkur í verki Guðs á jörðinni.

Þegar fólk er ungt er auðvelt að láta sig dreyma stóra drauma um framtíðina, um allt sem við ætlum að gera þegar við verðum stór o.s.frv.

En þegar aldurinn færist yfir er eins og fólk hætti að gera ráðstafanir, hætti að horfa fram á veginn og það hættir að láta sig dreyma. Ég hef meira að segja kynnst fólki sem er komið á eftirlaun sem bíður bara eftir að lífið endi! Þetta er sorgleg staðreynd, sérstaklega í dag þar sem margt gamalt fólk lifir fram yfir 80 jafnvel 90 ár. Margir eru líka heilsuhraustir í langan tíma.

Ég trúi því einmitt að versin hér fyrir ofan tali um að aldraðir munu dreyma stóra drauma og hafa miklar framtíðarsýnir fyrir verki Guðs. Guð hefur þörf fyrir alla, líka þig!

En þá hugsa margir með sér: "Hvað get ég svo sem gert", "Það eru margir aðrir miklu duglegri en ég", og "ég kann ekki eða get ekki þetta og hitt" o.s.frv.

Þetta er rangur hugsunarháttur, því að Guð skapaði þig í sinni mynd, einmitt með þá hæfileika, framkomu og gjafir sem þú hefur yfir að búa, svo ég tali ekki um alla reynsluna sem býr í eldri kynslóðinni.

Málið er það að því miður, þá eru kynslóðirnar á Íslandi í dag að fjarlægjast meir og meir.

Þess vegna er mjög mikilvægt að við snúum þessari þróun við og sækjumst eftir að eiga samfélag hvort við annað. Ég veit að kynslóðir sem hafa lifað tímana tvenna búa yfir mikilli þekkingu og reynslu sem yngri kynslóðir vantar í dag. Ég veit líka að yngri kynslóðir búa yfir mikilli starfsorku og lífsgleði sem getur nýst þeim sem eldir eru.

Þess vegna er svo mikilvægt að við vinnum saman sem ein heild.

Jesús sagði sjálfur: "Uppskeraner mikil en verkamenn fáir. Biðjið því Drottin uppskerunnar að senda verkamenn til uppskeru sinnar."       Matteus 9:37

Það er alltaf nóg af verkefnum hjá Guði. Við þurfum aldrei að vera atvinnulaus hjá honum. Kanski átt þú erfitt með að vinna líkamlega vinnu en þú getur kanski beðið eða tekið að þér þá sem eru yngir!

Hvaða drauma og framtíðarsýnir hefur þú?

Þú veist að Guð notar einmitt bara venjulegt fólk til að gera stóra hluti fyrir sig. Því í vanmætti okkar er kraftur Guðs mikill.

Við meigum aldrei hætta að láta okkur dreyma

Við þurfum að hugsa stórt og dreyma stóra drauma!



    Flettingar í dag: 43
    Gestir í dag: 27
    Flettingar í gær: 63
    Gestir í gær: 23
    Samtals flettingar: 131825
    Samtals gestir: 40145
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 19:06:36