Flokkur: Á Heilagur Andi þig?

03.06.2008 00:46

Á Heilagur Andi þig?

Þetta er spurnig sem er þess virði að spyrja sjálfan sig að aftur og aftur.

Veistu að Guð hefur áætlun með líf þitt!

Þegar hann skapaði þig var það ekki af einskærri tilviljun, heldur vegna þess að þú ert mikilvæg. Við vitum flestar að Guð hefur einhverja áætlun með líf okkar, en svo ströndum við  þar, við vitum ekki hvað við eigum að gera næst.

Ég skal segja þér hvernig þú getur komist að því hvað Guð vill með þig. Hlustaðu á litlu hugmyndirnar sem þú færð, sem stundum geta virkað svo fáránlegar, en víkja samt ekki úr huga þér. Þú ert jafnvel farin að plana allt mögulegt án þess að þú ætlaðir þér að gera það.

Þú getur verið búin að taka á móti Jesú sem frelsara þínum, skírst í Heilögum Anda og  jafnvel talað tungum. Kanski ertu meira að segja að þjóna í kirkjunni þinni. En er það sem þú ert að gera núna, það sem er fullkominn vilji Guðs með líf þitt?
Á Heilagur Andi þig?

Hefurðu þorað að setjast niður og spyrja Guð hvað það sé sem hann vill með þig?

Stundum er tími til að hlusta, stundum tími til að bíða og stundum er tími til að framkvæma.

Veistu að hlíðni þín við Guð gæti breytt sögunni!

Við getum lesið margar frásagnir í Biblíunni um venjulegt fólk sem ákvað að hlíða því sem Guð bað það um að gera, jafnvel þó það hafi, mannlega séð, verið alveg út í hött.

Við getum lesið um Hönnu í 1. Samúelsbók 1. kafla.

Hanna gat ekki eignast börn. Í angist sinni gaf hún Guði loforð um að ef hann myndi gefa henni barn myndi hún færa það Guði. Þegar hún svo eignaðist son var komið að henni að standa við sinn hluta sáttmálans, að færa hann Guði. Hanna fór með drenginn sinn í musterið þar sem hún lét hann alast upp. Hún hefði getað slept því, þetta var nú einu sinni barnið sem hún hafði þráð svo lengi. En Hanna hlíddi og það varð þjóð hennar til mikillar blessunnar því Samúel var einn af fremstu prestum Ísraels.

Við getum líka lesið um Ester drottningu í Esterarbók.

Hún var ung stúlka sem Guð hafði sett sem drottningu í fjarlægu landi, þegar hún komst að því að það áttiað eyða þjóð hennar. Hún tók mikla áhættu sem varð til þess að konungurinn þyrmdi þjóð hennar. Hún hefði getað slept því að taka áhættuna, vegna þess að ákvörðunin sem hún tók gat valdið  því að hún yrði líflátin. En Ester hlíddi Guði sem varð til mikillar blessunar fyrir þjóð hennar.

Svona getum við haldið lengi áfram og lesið um t.d. Gídeon í Dómarabókinni 6-7 kafla og ljósmæðurnar sem tóku hlíðni við Guð fram yfir lög Faraós í Egyptalandi. Við getum lesið um þærí 2. Mósebók 1. 15-21 (alveg mögnuð lesning).

Í Postulasögunni 1.8 stendur:

En þér munuð öðlastkraft er Heilagur Andi kemur yfir yður og þér munuð verða vottar mínir í Jerúsalem og allri Júdeu, í Samaríu og allt til endimarka jarðarinnar.

Mark. 16. 17-18.

En þessi tákn munu fylgja þeim er trúa: Í mínu nafni munu þeir reka út illa anda, tala nýjum tungum, taka upp höggorma og þó þeir drekki eitthvað banvænt mun þeim ekki verða meint af. Yfir sjúka munu þeir leggja hendur og þeir verða heilir.

Lúkas 12.12

Því að Heilagur Andi mun kenna yður á þeirri stundu hvað segja ber.

Samt er það stundum þannig að þó við lesum svona vers og kunnum þau jafnvel utan að, þá tölum við okkur niður og gerum svo lítið úr okkur. Við hugsum jafnvel "ég get ekki gert þetta, ég er svo lítil og ómerkileg". Já það getur vel verið að það sé rétt, en Heilagur Andi sem býr ynnra með þér er það ekki!

Því þarft þú að byrja á því að hlusta á Guð og komst að því hver sé hans fullkomna áætlun með þig.

Þora að dreyma stóra drauma og læra að þekkja muninn á Heilögum Anda og eigin hugmyndum.

Þú þarft líka að þora að gera mistök því enginn er fullkominn í fyrstu tilraun. Þegar þú gerir mistök skaltu rísa upp og halda áfram og ekki gefast upp.

Þú þarft líka að hafa úthald, því úthaldið er lykillinn að velgengni.

Hvað hefur Guð verið að segja við  þig undanfarið?

Heilagur Andi vill reisa upp konur og stelpur sem þrá að kynnast honum og hafa mjúkt hjarta. Þú ert hluti af þessari áætlun.

Ekki segja við Heilagan Anda: "Nei þetta er ekki minn stíll, ég geri aldrei svona!"

Við þurfum að vera fúsar og tilbúnar til að gera það sem Guð biður okkur um að gera, því það mun hafa í för með sér mikla blessun fyrir líf okkar og þjóð.

Hver veit nema þú sért einmitt sett þar sem þú ert, einmitt vegna þessara tíma!

Megi Drottinn blessa ykkur


Erdna Varðrdóttir

    Flettingar í dag: 43
    Gestir í dag: 27
    Flettingar í gær: 63
    Gestir í gær: 23
    Samtals flettingar: 131825
    Samtals gestir: 40145
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 19:06:36