Flokkur: Þú ert það sem þú borðar!

15.08.2008 11:49

Þú ert það sem þú borðar

Flestir Íslendingar í dag vita að mataræði hefur áhrif á heilsu og líðan. Ef við borðum óhollan og næringarlausan mat mun okkur líða eftir því. Slíkt mataræði mun hafa áhrif á líf og líkama okkar fyrir rest. Við verðum veik, heilsulaus, meltingarkerfi okkar verður fyrir skaða og jafnvel hjarta og æðakerfi okkar líka. Því reyna flestir Íslendingar í dag að velja næringarríkan mat sem byggir upp líkama okkar og heilsu.

Færri hafa áhyggjur af andlegu mataræði okkar. Hvað ertu að borða andlega?

Við vitum að það sem við nærum anda okkar á hefur áhrif á allt okkar líf. Ef við "borðum" næringarlausa andlega fæðu verðum við sljó, værukær, missum sjónar af stefnu okkar sem kristnir einstaklingar og fyrir rest mun það hafa áhrif á siðferði okkar og allt trúarlífið.

Ef við nærum okkur hins vegar á orði Guðs - Biblíunni, lesum bækur og kennsluefni sem hjálpa okkur að skilja Biblúna betur og eigum samfélag við Guð í gegnum bæn munum við vaxa og verða sterk. Við munum ekki bara vera sterk andlega talað því slík næring mun hafa miklu víðtækari áhrif á líf okkar. Sterkir kristnir einstaklingar vita hverjir þeir eru (í Kristi), þeir standa óhaggaðir þegar þeir mæta mótlæti í lífinu, þeir vita hvert þeir stefna og hver er þeirra köllun í lífinu og fara efitr því.

Þvílíkur munur á þessu tvennu og þetta hefur bara með "andlegt mataræði" að gera.

Jesús sagði við þá: "Minn matur er að gera vilja þess sem sendi mig og fullna verk hans.   Jóh. 4. 34

Látið því ekki hið góða sem þið eigið verða fyrir lasti. Guðs ríki er ekki matur og drykkur heldur réttlæti, friður og fögnuður í heilögum anda. Hver sem þannig þjónar Kristi er Guði velþóknanlegur og í metum hjá mönnum. Keppum þess vegna eftir því sem til friðar heyrir og eflir samfélagið.    Róm 14.17

Við þurfum að fylla okkur af orði Guðs og læra að þekkja það til að geta notað það þegar á þarf að halda. Þetta er alveg eins og með okkur líkamlega. Ef við höfum borðað vel þá höfum við þá orku sem til þarf til að sinna vinnu okkar. Ef við hins vegar erum svöng verðum við máttlaus, einbeitingarlítil og þreytt og getum ekki tekist á við verkefnin eins og skildi. Orð Guðs á að vera eins og aukaforði sem við grípum í þegar á þarf að halda, við getum sótt það því það býr ynnra með okkur. Við skulum kíkja á nokkur dæmi:

Drottinn er eilífur Guð, er skapað hefir endimörk jarðarinnar. Hann þreytist ekki, hann lýist ekki, speki hans er órannsakanleg. Hann veitir kraft hinum þreytta og gnógan styrk hinum þróttlausa. Ungir menn þreytast og lýjast, og æskumenn hníga, en þeir, sem vona á Drottin, fá nýjan kraft, þeir fljúga upp á vængjum sem ernir. Þeir hlaupa og lýjast ekki, þeir ganga og þreytast ekki.
Jesaja 40: 28-31


Verið ávallt glaðir í Drottni. Ég segi aftur: Verið glaðir. Ljúflyndi yðar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd. Verið ekki hugsjúkir um neitt, heldur gjörið í öllum hlutum óskir yðar kunnar Guði með bæn og beiðni og þakkargjörð. Og friður Guðs, sem er æðri öllum skilningi, mun varðveita hjörtu yðar og hugsanir yðar í Kristi Jesú.    Fil. 4:4-7

Því að ekki gaf Guð oss anda hugleysis, heldur anda máttar og kærleiks og stillingar.
1.    Tím. 1:7


En hvernig er þá lestri okkar í Biblíunni háttað?

Nærum við okkur daglega (mæli með að lesandi kíki á pistilinn "hvernig á að stúdera Biblíun") þar sem við lesum markvisst og leifum Guði að tala til okkar í gegnum það sem við lesum? Eða lesum við bara einhverstaðar þar sem Biblían opnast eða drögum við mannakorn og nærum okkur eingöngu þannig? Ég líki því við að við opnum  skápinn og fáum okkur eitt tekex af því að við erum að drepast úr hungri og ætlumst til að verða södd af því!

Biblían er full af fyrirheitum, kennslu og uppörfun fyrir okkur og við þurfum að læra að þekkja orð Guðs. Við þurfum sífellt að fylla á orðaforðann okkar til að geta staðið gegn óvininum þegar hann reynir að segja okkur að lygin sé sannleikur!

Að lokum: Styrkist nú í Drottni og í krafti máttar hans. Klæðist alvæpni Guðs, til þess að þér getið staðist vélabrögð djöfulsins. Því að baráttan, sem vér eigum í, er ekki við menn af holdi og blóði, heldur við tignirnar og völdin, við heimsdrottna þessa myrkurs, við andaverur vonskunnar í himingeimnum.  Efes. 6:10-13

Verum það fólk sem Guð hefur ákvarðað okkur til að vera og vöxum í orði Guðs og þekkingunni á honum.

Vitið þið ekki að líkami ykkar er musteri heilags anda sem í ykkur er og þið hafið frá Guði? Þið eigið ykkur ekki sjálf. Þið eruð verði keypt. Vegsamið því Guð með líkama ykkar.  1. Kor 6. 19-20

Þú er það sem þú borðar. Þú ein(n) getur breytt þínu andlega mataræði svo þú farir að vaxa og styrkjast í trúnni á Drottinn Guð.



Erdna Varðardóttir
    Flettingar í dag: 43
    Gestir í dag: 27
    Flettingar í gær: 63
    Gestir í gær: 23
    Samtals flettingar: 131825
    Samtals gestir: 40145
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 19:06:36