Flokkur: Það er engin fordæming..
18.09.2008 13:20
Nú er því engin fordæming fyrir þá sem tilheyra Jesú Kristi
Nú er því engin fordæming fyrir þá, sem tilheyra Kristi Jesú (Róm. 8:1).
Þetta er sannleikur úr orði Guðs beint inn í líf okkar. Engu að síður er það staðreynd að margir kristnir einstaklingar eru þjakaðir af fordæmingu. Finnst þeir algjörlegar misheppnaðir og engum til gagns. En hvers vegna er þetta svona? Mín trú er sú að það sé lygi óvinarins sem bindur okkur og að það sé hans verk að við séum undir fordæmingu. Hann hvíslar lygum sínum í eyru okkar og ef við gáum ekki að okkur meðtökum við þær inn í líf okkar og förum að trúa þeim. Sannleikurinn er sá að mikill munur er á fordæmingu (condemnation) og sannfæringu Guðs (conviction). Heilagur andi sannfærir okkur um synd, réttlæti og dóm ( ).
Sannfæring er því alltaf um eitthvað ákveðið atriði og við upplifum þörf til að iðrast og snúa okkur frá syndinni. Þ.e. færir líf. En fordæming er mun almennari, ég get ekki gert neitt almennilega, ég er vonlaus. Færir dauða.
Mín hvatning til okkar er að við gætum huga okkar (Róm. 12.2) og byggjum okkur upp á orði Guðs. Minnum okkur á hverjar við erum í Jesú Kristi.
Ég er útvalin af Guði
Áður en heimurinn var grundvallaður hefur hann útvalið oss í Kristi, til þess að vér værum heilagir og lýtalausir (án bletts eða hrukku) fyrir honum (Efes. 1:4).
Ég er ættleidd af Guði
Í kærleika sínum ákað hann fyrirfram að veita okkur sonarrétt í Jesú Kristi (Efes. 1:4-5).
Ég er barn Guðs, í fjölskyldu hans
Sjáið hvílíkan kærleika faðirinn hefur auðsýnt oss, að vér skulum kallast Guðs börn. Og það erum vér. Heimurinn þekkir oss ekki, vegna þess að hann þekkti hann ekki (1. Jóh. 3:1).
Ég á fyrirgefningu Hans á öllum syndum mínum
Ef vér játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss (allar) syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti (1. Jóh 1:9).
Ég er endurleyst af Guði (í samhljómi við Hann)
En ef vér göngum í ljósinu, eins og hann er sjálfur í ljósinu, þá höfum vér samfélag hver við annan og blóð Jesú, sonar hans, hreinsar oss af allri synd (1. Jóh. 1:7).
Guð sér mig sem heilaga, lýtalausa og óaðfinnanlega
Og yður, sem áður fyrri voruð fráhverfir Guði og óvinveittir honum í huga yðar (sál ) og vondum verkum (líkama), yður hefur hann nú sátta gjört við sig með dauða Krists í jarðneskum líkama. Hann vildi láta yður koma fram fyrir sig heilaga, lýtalausa og óaðfinnanlega (Kól 1:21-22).
Ég er merkt innsigli heilags anda
Í honum eruð og þér, eftir að hafa heyrt orð sannleikans, fagnaðarerindið um sáluhjálp yðar og tekið trú á hann og verið merktir innsigli heilags anda, sem yður var fyrirheitið (Efes. 1:13).
Ég er kölluð til að uppfylla tilgangs Guðs, samkvæmt ákvörðun Hans
Vér vitum, að þeim, sem Guð elska, samverkar allt til góðs, þeim sem kallaðir eru samkvæmt ákvörðun Guðs (Róm. 8:28).
Þá sem hann fyrirhugaði, þá hefur hann og kallað, og þá sem hann kallaði, hefur hann og réttlætt, en þá sem hann réttlætti, hefur hann einnig vegsamlega gjört (Róm 8:30).
Ég er samþegn hinna heilögu og heimamaður Guðs (hef full ríkisborgararéttindi meðal Guðs fólks)
Þess vegna eruð þér ekki framar gestir og útlendingar, heldur eruð þér samþegnar hinna heilögu og heimamenn Guðs (Efes. 2:19).
Ég er réttlætt (Guð sér mig sem réttláta)
Réttlættir af trú höfum vér því frið við Guð fyrir Drottin vorn Jesú Krist (Róm. 5:1).
Ég er helguð (frátekin fyrir anda Guðs)
Og þetta voruð þér, sumir yðar. En þér létuð laugast, þér eruð helgaðir, þér eruð réttlættir fyrir nafn Drottins Jesú Krists og fyrir anda vors Guðs (1. Kor. 6:11).
Ég er endurleyst - keypt með blóði krists
Í honum, fyrir hans blóð eigum vér endurlausnina og fyrirgefningu afbrota vorra (Efes. 1:7).
Ég er hreinsuð með blóði krists (af öllum syndum mínum)
En ef vér göngum í ljósinu, eins og hann er sjálfur í ljósinu, þá höfum vér samfélag hver við annan og blóð Jesú, sonar hans, hreinsar (færir frá okkur) oss af allri synd (1. Jóh. 1:7).
Ég er erfingi Guðs og samarfi Krists
Sjálfur andinn vitnar með vorum anda, að vér erum Guðs börn. En ef vér erum börn, þá erum vér líka erfingjar, og það erfingjar Guðs, en samarfar Krists, því að vér líðum með honum, til þess að vér einnig verðum vegsamlegir með honum (Róm. 8:16-17).
Ég er erindreki Krists
Vér erum því erindrekar Krists, eins og það væri Guð, sem áminnti, þegar vér áminnum. Vér biðjum í Krists stað: Látið sættast við Guð (2. Kor. 5:20).
Mér er ætlað að líkjast persónu Krists
Því að þá, sem hann þekkti fyrirfram, hefur hann og fyrirhugað til þess að líkjast mynd sonar síns, svo að hann sé frumburður meðal margra bræðra (Róm. 8:29).
Ég er frjáls/laus undan fordæmingu

Af því að ég tilheyri Jesú er ég réttlætt í honum og laus undan syndinni (eins og við töluðum um áðan) þá þarf ég ekki að dæma sjálfa mig.
Ég get gert allt vegna Krists
Allt megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrkan gjörir (Fil. 4:13).
Minnum okkur sjálfar á þessi fyrirheit Guðs og tökum ekki við fordæmingu óvinarins sem kemur eingöngu til að stela slátra og eyða. Hann hefur ekkert vald í lífi okkar og Guð hefur eingöngu góða hluti fyrir okkur og hefur fyrirbúið okkur vonarríka framtíð (Jer. 29:11).
Guð blessi okkur allar og styrki á göngunni með honum.
Alís Inga