Flokkur: Á tímum sem þessum!
03.11.2008 00:04
Á tímum sem þessum!
Það hefur ekki farið fram hjá neinum hvað gerst hefur í íslensku samfélagi undanfarnar vikur. Lítið er rætt um annað en efnahagsástand og margir eru mjög langt niðri. Fólk minnir sig á að hlúa að því sem þeim er kærast, fjölskyldu og vinum. Það er rétt að við eigum að meta það sem við eigum í kringum okkur en mig langar í þessum stutta pistil að minna okkur á annað sem við eigum en margir hafa hugsað lítið um dags daglega og það er trúin okkar á Jesú. Oft er það þannig að margir hugsa lítið um trúmál meðan allt leikur í lyndi en snúa sér svo til Guðs þegar erfiðleikar koma upp.
Þess vegna er mikilvægt að við sem höfum tekið trú á Jesú séum það ljós sem hann hefur kallað okkur til að vera. Ég trúi því að einmitt á tímum sem þessum þurfum við að vera vakandi fyrir því að gefa von þar sem vonleysi ríkir, ljós þar sem er myrkur og frið inn í óöryggi og ótta.
Þér eruð ljós heimsins. Borg, sem á fjalli stendur, fær ekki dulist. Ekki kveikja menn heldur ljós og setja undir mæliker heldur á ljósastiku og þá lýsir það öllum í húsinu. Þannig lýsi ljós yðar meðal mannanna að þeir sjái góð verk yðar og vegsami föður yðar sem er á himnum.
Matteus 5:14-16
Mig langar því að hvetja þig til að taka stöðu þína sem JesúKona í þínu umhverfi, á vinnustaðnum þínum, meðal nágranna þinna og þeirra sem þú umgengst og vera skýnandi ljós Jesú Krists þar. Talaðu líf þegar verið er að tala dauða og talaðu von inn í umhverfi þitt. Biddu fyrir umhverfi þínu að Guð megi nota þig til að vera uppörfun fyrir einhvern sem þarf á þvi að halda.
Hver veit nema þú sért á þessum stað í dag einmitt vegna þessara tíma?
því að "hver sem ákallar nafn Drottins verður hólpinn".
En hvernig eiga menn að geta ákallað þann sem þeir trúa ekki á? Og hvernig eiga þeir að trúa á þann sem þeir hafa ekki heyrt um? Og hvernig eiga þeir að heyra án þess að einhver prédiki? Rómverjabréfið 10:13-14
Jesús kom inn í þennan heim til að við getum átt frið við Guð. Hann kom til að fylla tómarúmið sem er ynnra með okkur og gefa okkur sannan tilgang með lífi okkar.
Það er okkar verk að láta aðra vita af því. Réttum fram það sem við höfum - sem er sannur friður, sönn gleði og von um eilíft líf í Jesú Kristi. Það er ekkert úrelt að vera kristinn.
Drottinn blessi þig.
Erdna Varðardóttir

Skrifað af Erdna Varðardóttir