Flokkur: Gefðu þér tíma fyrir Jesú!

24.12.2008 01:56

Gefðu þér tíma fyrir Jesú!


Nú þegar jólaundirbúningurinn stendur sem hæst er auðvelt fyrir okkur konur að gleyma okkur í öllu sem þarf að gera fyrir jólin. Baka, þrífa, skreyta, pakka inn gjöfum, versla í matinn og undirbúa fjölskylduboðið svo eitthvað sé nefnt.

En þrátt að í mörg horn sé að líta þá langar mig að hvetja þig til að gefa Jesú gjöf um þessi jól. Um hann snýst jú þessi hátíð fyrst og fremst. Guð gaf dýrmætustu gjöf allra tíma þegar hann gaf son sinn í heiminn til að opna leiðina fyrir okkur inn í himininn. Jesús gaf líf sitt fyrir þig og mig til að við gætum eignast eilíft líf með honum. Það eina sem þú þarft að gera er að taka við þeirri gjöf og gera hana að þinni.

Mig langar að hvetja þig til að gefa honum tíma þinn í jólagjöf - að setjast niður og gefa þér tíma fyrir Jesú.
Við erum svo uppteknar við allt annað en að gefa honum tíma okkar.

Í Lúkasi 10: 38-42 lesum við frásögnina um systurnar Mörtu og Maríu.

María elskaði Jesú af öllu hjarta. Hún leitaðist við að eiga tíma með honum og nota hvert tækifæri til að hlusta á hvað hann hafði að gefa. Hún hafði greinilega áttað sig á því hver hann var í raun og veru - sonur hins lifanda Guðs.

Marta elskaði Jesú líka en hún var uppteknari af vinnunni og af öllum verkunum og gaf sér því minni tíma til að hlúa að sjálfri sér og sínu andlega lífi.

Í dagsins önn er mikilvægt að við setjumst niður og gefum okkur tíma til að fylla á okkar andlega líf. Ef við gerum það ekki þornum við upp, þolinmæðin minnkar, kærleikurinn kólnar, ýmislegt fer að fara í taugarnar á okkur sem annars myndi ekki ger það og tungan fer á fullt skrið.

Og hvar fáum við þessa næringu til að fylla á anda okkar? Jú það er með því að setjast niður og lesa í Biblíunni og tala við Guð. Þannig fáum við næringu fyrir anda okkar. Okkur myndi aldrei detta í hug að sleppa því að borða þegar mikið er að gera því þá myndum við ekki hafa orku til að vinna verkin okkar. Þannig er það líka með anda okkar.

Notum tímann okkar vel yfir jólin. Byrjum á að gefa Jesú af tíma okkar og þá mun hann gefa okkur það sem til þarf af þolinmæði og styrk til að gera það sem við þurfum að gera.

Megi Drottinn blessa þig og styrkja þig og gefa þér yndisleg jól með sönnum jólatilgangi.

Erdna Varðardóttir



    Flettingar í dag: 43
    Gestir í dag: 27
    Flettingar í gær: 63
    Gestir í gær: 23
    Samtals flettingar: 131825
    Samtals gestir: 40145
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 19:06:36