Flokkur: Er hjarta þitt heilt og óskipt gagnvart Guði?
17.02.2009 20:35
Er hjarta þitt heilt og óskipt gagnvart Guði?
Í I. konungabók 8:61 segir:
Hjörtu yðar séu heil og óskipt gagnvart Drottni, Guði vorum, svo að þér breytið eftir lögum hans og haldið boðorð hans.
Þetta vers talaði til mín og er einmitt eitthvað sem ég held að sé mikilvægt að spyrja sig reglulega að: Er hjarta mitt heilt og óskipt gagnvart Guði? Lýsir líf mitt, hegðun, málfar og skoðanir reglum hans og boðorðum?
Sú mælistika sem Biblían notar á stöðu okkar gagnvart Guði eru boð Drottins í gegnum t.d. Fjallræðuna í Matteusarguðspjalli, Spámennina og Boðorðin 10. Hvernig elskum við Drottinn? Jesús sagði Ef þér elskið mig munuð þér halda boðorð mín. (Jóh.14:15)
Við skulum skoða nokkur dæmi:
Fyrsta boðorðið sem nefnt er í 2. mósebók 20. kafla er Ég er Drottinn, Guð þinn, sem leiddi þig út af Egyptalandi, út úr þrælahúsinu. Þú skalt ekki hafa aðra guði en mig.
Hefur þú leyft hjarta þínu að dýrka annað en hann? Skiptir það þig máli hvaða augum Guð lítur á þig eða er eitthvað annað sem vegur þyngra? Guðir þessarar aldar heita kannski ekki Baal eða Ra, en ef til dæmis græðgi (mammón - peningar), hroki, dramb, álit annarra, metnaður eða annað situr í hásæti hjarta þíns þá hefur þú dýrkað aðra guði.
Ester drottning var fyrir kraftaverk í þeirri stöðu að geta bjargað þjóð sinni frá tortímingu. Hún hefði getað afneitað Guði, tekið til við að dýrka guði þeirrar þjóðar sem hún bjó hjá og þar með neitað að taka stöðu sína. En hún vissi að með því að vera heil frammi fyrir Drottni, leita hans og treysta á Hann þá væri hún í hans hendi, hvernig sem færi. Í Rómverjabréfinu 8:28 segir að Þeim, sem Guð elska, samverkar allt til góðs. Hún dýrkaði ekki aðra guði. Hún elskaði Guð og hann snéri aðstæðum henni í hag.
Annað boðorðið segir Þú skalt ekki leggja nafn Drottins, Guðs þíns, við hégóma.
Þetta atriði er orðið svo algengt okkar á meðal að það virðist vera smávægilegt og frekar saklaust að segja "Guð" og "Jesús minn" við hverja upphrópun. En einhver er ástæðan fyrir því að Guð hafði þetta atriði sem eitt af þessum aðal 10! Að nota nafn Drottins sem túlkun á hneykslan, viðbjóði eða öðru er brot á boðorði Guðs. Ekki vanvirða nafn hans sem elskar þig mest af öllu!
5. boðorðið segir Þú skalt ekki morð fremja.
Jesús segir í matteusi 5:21-22 [...] Þú skalt ekki morð fremja. Sá sem morð fremur skal svara til saka fyrir dómi. En ég segi yður: Hver sem reiðist bróður sínum skal svara til saka fyrir dómi. Sá sem hrakyrðir bróður sinn skal svara til saka fyrir ráðinu og hver sem svívirðir hann hefur unnið til eldsvítis. Hér flokkast reiði, bræði og baktal sem brot á boðorði Guðs. Jesús segir okkur að vera skjót til sátta við andstæðing okkar.
9. og 10 boðorðið fjalla um Þú skalt ekki girnast....
hús, eiginkonu/eiginmann, þræl, ambátt, uxa, asna...hús, vinnu, bíl, fellihýsi, jeppa, utanlandsferðir...og hvað sem þér dettur í hug sem vekur hjá þér girnd í hluti náunga þíns.
Afbrýðisemi og öfund heltekur huga og hjarta! Það gefur færi á biturleika.
Í 1. Samúelsbók segir frá Sál konungi. Í 18. kafla segir frá því að Sál öfundaðist út í Davíð því konurnar sungu um að Sál hafði drepið sín þúsund en Davíð sín 10 þúsund. Sál var valinn fyrsti konungur gyðinga en hjarta Sáls var ekki heilt gagnvart Guði. Þegar hann fór ekki eftir boði Guðs um að deyða alla Amalekíta og búfénað þeirra, þá hafnaði Guð Sál.
Það sem eftirlifði af Amelekítum og eigum þeirra er hægt að sjá sem táknmynd upp á synd í okkar lífi. Synd sem við losum okkur ekki við, viljum kannski halda hluta af þessu eða smá af hinu. Með því leyfum við synd að fylla hluta, ef ekki allt, hjarta okkar.
Í Malakí 3:8-10 Segir Dottinn: Á maðurinn að pretta Guð, úr því að þér prettið mig? Þér spyrjið: "Í hverju höfum vér prettað þig?" Í tíund og fórnargjöfum.
Mikil bölvun hvílir yfir yður, af því að þér prettið mig, öll þjóðin. Færið alla tíundina í forðabúrið til þess að fæðsla sé til í húsi mínu, og reynið mig einu sinni á þennan hátt segir Drottinn allsherjar, hvort ég lýk ekki upp fyrir yður flóðgáttum himinsins og úthelli yfir yður yfirgnæfanlegri blessun.
Ananías og Saffíra (postulasagan 5) lugu til um peninga, Satan fyllti hjarta þeirra svo að þau lugu að heilögum anda. Af hverju er hjarta þitt fullt þegar kemur að peningum, tíund og fórn? Heldur þú frá Guði því sem hann á með réttu?
Guð setur kröfu á okkur að vera heilshugar, óskiptar, fráteknar fyrir Hann. Við erum dýru verði keyptar! Við ætlumst til þess að ef við kaupum okkur bíl að vélin sé til staðar - að hann sé ekki bara útlitið og búið. Eða að einbýlishúsið sem við byggðum og lögðum allt okkar í, að það skorti ekki rafmagn og hita. Við ætlumst til þess að það sé íbúðarhæft! Guð vill ekki bara bíða og sjá hvort við ætlum að gefa honum eitthvað af lífi okkar. Hann biðst ekki afsökunar á trufluninni og kveður ef við streitumst á móti því þegar hann vill eiga við okkur og móta okkur!
Í Jakobsbréfinu 4:5 segir: Hann þráir andann í okkur með afbrýði. Hann þráir að við séum íbúðarhæfar fyrir anda sinn! Er eitthvað óeðlilegt að hann ætlist til þess að hjarta okkar sé frátekið fyrir hann? Nei!
Ef þú finnur og sérð af þessum örfáu dæmum að hjarta þitt er ekki heilt fyrir Guð, þá er náð í dag. Hún er ný á hverjum morgni segir í Harmljóðunum 3:23. Í jesaja 59:1 segir að hönd Guðs er ekki svo stutt að hann geti ekki hjálpað og eyra hans ekki svo þykkt að hann heyri ekki. Hann er trúr og sannur og fyrirgefur okkur þegar við komum fram fyrir hann og iðrumst.
Óvinurinn og ákærandinn, vill ekki að við sjáum andlegt ástand okkar, og þegar við sjáum það reynir hann eftir fremsta megni að halda okkur á sama stað með fordæmingu, sjálfsvorkunn og stöðugri upprifjun á fortíðinni. Drottinn segir í Jesaja 43:18-19 Rennið eigi auga til hins umliðna og gefið eigi gætur að því er áður var. Sjá nú hef ég nýtt fyrir stafni!...
María Magdalena hefði getað lifað í skugga fortíðarinnar, af ótta við það sem áður var eða menn sem gátu minnt hana á það liðna. En hún þekkti mátt Guðs, hélt sér við hann - var heil í honum. Og hún fékk að bera kveðjuna "Ég hef séð Drottinn!" jóh 20:18
Við þurfum að seilast eftir því sem framundan er. Hvað hefur Guð fyrir þig á þessu ári? Hvað hefur þú fyrir Guð? Tíminn er kominn til að þú takir stöðu þína í líkama Krists. Það getur enginn tekið ábyrgð á andlegu ástandi þínu nema þú sjálf. Hver og ein okkar þarf að heiðra það loforð sem við gáfum í upphafi þegar við gáfum Jesú hjarta okkar - heilt og óskipt!
Kærleikskveðja, Anna Sigríður Snorradóttir

Skrifað af Anna Sigríður Snorradóttir