06.05.2010 21:01

Það er kominn tími til að fara á hnén!

"Þú skalt vegsama Drottin Guð þinn fyrir landið góða, sem hann gaf þér."   5. Mós 8:10

Guð hefur svo sannarlega gefið okkur gott land að búa í. Þrátt fyrir að nú virðist allt vera á vonarvöl í kringum okkur getum við verið viss um að Guð sér fyrir okkur.

Mig langar til að minna á að í mörg ár hafa kristnir einstaklingar beðið fyrir landinu, að Guð megi mæta þjóðinni og taka til í þeirri spillingu sem hefur átt sér stað hér, spillingu sem jafnvel engum datt í hug að væri eins mikil og nú lítur út fyrir að vera.

Núna þurfum við virkilega að skipa okkur í skarðið og biðja fyrir landinu okkar á þessum krítísku tímum sem við erum vitni að. Það er búið að boða til kosninga í vor og ég þrái að sjá fólk í embættum sem vill vinna að þeim málefnum sem er landinu okkar til heilla.

Í 1. Tim 2:2 stendur:
"Biðjið fyrir konungum og öllum þeim sem hátt eru settir til þess að við fáum lifað friðsamlegu og rólegu lífi í guðsótta og siðprýði. "

Við þurfum fólk í stöður og embætti sem vinnur heilshugar að því að þær auðlindir sem Guð hefur blessað landið okkar með verði nýttar vel, ekki í græðgi. Við þurfum embættismenn (og konur) sem þora að játa rétt siðgæði í bæði viðskiptum og líferni og sem þora að hafa skoðanir á réttu og röngu.

Því vil ég hvetja ykkur til að biðja markvisst fyrir því starfi sem nú er verið að vinna og sérstaklega fyrir komandi kosningum. Við viljum að Guð fái að skipa fólk í embætti, í ríkisstjórn, framkvæmdavald, nefndir og stöður sem almenningur veit síst af en hafa gríðarlega mikið gildi landinu okkar til heilla.

Í Rómverjabréfinu 13:1 stendur:
"Hver maður hlýði þeim yfirvöldum sem eru yfir hann sett. Því engin væru yfirvöld ef Guð gæfi þau ekki. Þau sem eru til hefur Guð skipað."  (Hvet þig til að lesa 13 kafla rómverjabréfsins)

Biðjum markvisst næstu vikur og mánuði fyrir ráðamönnum og embættismönnum þessarar þjóðar. Biddu Guð að sýna þér hvað þú átt að kjósa þegar þar að kemur. Ekki skila auðu eða sleppa því að mæta á kjörstað.

Flestir vilja sjá virkilegar breytingar en vita ekki almennilega hvaða breytingar það ættu að vera. Ég held að fáir séu tilbúnir til að vinna þá krítísku vinnu sem nú þarf að taka á í efnahagsmálunum og að taka til í kerfinu. Þeir sem munu vinna að þessum málum þurfa mikla visku og  það besta sem við getum gert er að biðja. Biðja Guð um að velja það fólk sem er eftir hans hjarta og þá munum við sjá raunverulegar breytingar í landinu okkar.

"Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. Því að hver sá öðlast sem biður, sá finnur sem leitar, og fyrir þeim sem á knýr mun upp lokið verða."  Matt 7:7-8

Tökum stöðu okkar og knýjum á í bæn fyrir landinu okkar. Það er bæn sem er Guði að skapi. Treystum Guði fyrir því verki sem er framundan, jafnvel þó við skiljum ekki hvað sé að gerast og jafnvel þó okkur finnist að aðrir hefðu átt að skipa ákveðnar stöður.
Guð lætur ekki að sér hæða. Þess vegna skulum við taka okkar hluta alvarlega og biðja markvisst að Guðs vilji mætti ná fram að ganga.

Meðfylgjandi er boðskapur sem kom til Íslensku þjóðarinnar áramótin 1994-1995.
Þið getið nálgast hann hér.

Erdna Varðardóttir

10.04.2009 00:16

Þú getur!

Hver kannast ekki við að hafa hugsað eða jafnvel talað um sjálfan sig á eftirfarandi hátt: "Ég get aldrei gert neitt rétt! Það eru allir miklu klárari og duglegri en ég! Allt sem ég geri gera aðrir betur!"
Jú ég held að við flestar könnumst við að hafa hugsað svona um okkur einhvern tímann og jafnvel talað okkur niður. En allir hafa eitthvað gott fram að færa því við erum jú einu sinni skapaðar í Guðs mynd og það var hann sem gaf okkur hæfileika okkar.

Ef við komum fram fyrir Guð með það sem við höfum í einlægni, getur hann gert eitthvað stórkostlegt úr því. Eins og þegar Jesús mettaði yfir 5000 manns með tveim brauðum og 5 fiskum. (sjá Matteus 14. kafla)

María móðir Jesú var mjög ung. sennilega um  14-16 ára þegar hún var beðin um að taka að sér mikilvægt hlutverk. Hún fékk boð frá Guði um að fæða frelsara heimsins. (Sögu hennar má finna í fyrstu köflum allra guðslpjallanna)

Í þessum heimshluta tíðkaðist að vera með fyrirframákveðið hjónaband þ.e. foreldrar brúðarinnar ákváðu hvaða mann dóttir þeirra átti að giftast. María var s.s trúlofuð manni sem hét Jósef.

María hafði val um að segja já eða nei þegar engillinn kom með boðin til hennar. Ef maður skyggnist inn í veraldlegar kringumstæður hennar þá voru þær einhvern veginn á þessa leið:

o    Hún var trúlofuð manni sem hafði sennilega gert samning við foreldra hennar um að eiga hana.
o    Hún átti á hættu að missa allt ef hún segði já við verkefninu
o    Missa frá sér ástina sína
o    Framtíðina sem hún hafði séð fyrir sér
o    Orðstýr sinn og Jósefs um að eiga barn utan hjónaband

En María ákvað að segja já því hún trúði og treysti Guði fyrir lífi sínu. Ákvörðun hennar hafði áhrif á allan heiminn og allt mannkyn enn í dag.
María gerði það sem hún gat. Hún ákvað að ganga með barnið, fæða að og ala það upp og Guð sá um afganginn.

Hvað er það sem þú getur gert? Hugsaðu vel um það hvaða eiginleika þú hefur og  hvernig þú getur notað þá Guði til heiðurs.

Ef Guð er með okkur hver er þá á móti okkur?

En honum, sem í oss verkar með krafti sínum og megnar að gera langt fram yfir allt það sem vér biðjum eða skynjum, honum sé dýrð í kirkjunni og í Kristi Jesú með öllum kynslóðum um aldir alda. Amen.             Efesus 3:20-21

Þú getur.
..Haft áhrif á huga þinn!
o    Á það hvernig þú horfir á sjálfa þig eða á hvað þú horfir
o    Á það hvernig þú hugsar um sjálfa þig

Þú getur.
..Haft áhrif á talsmáta þinn!
o    Hvernig þú talar um sjálfa þig eða aðra
o    Talarðu neikvætt eða niður til þín?
Gerirðu lítið úr hæfileikum þínum þegar fólk hrósar þér?

Þú getur.
..Haft áhrif á hjarta þitt!
..Beðið fyrir þeim sem þurfa á því að halda!
..Vitnað fyrir þeim sem Guð minnir þig á annað hvort með beinum vitisburði í orði eða með verkum þínum og framkomu!

Þú getur.
..Verið fráls til að vera þú sjálf
..Verið sú kona sem Guð hefur kallað þig til að vera (eiginkona, móðir, amma, frænka, vinkona, tengdadóttir o.s.frv.)
....Þorað að standa með sjálfri þér og því sem þér finnst - þínum skoðunum!
..Þrátt fyrir fortíð þína og þrátt fyrir að mistök þín virðast vera eins og himinhátt og óklífanlegt fjall!

Þú getur.
. vegna þess að Guð skapaði þig sem þig með alla þína kosti og galla!
..vegna þess að Guð gaf þér hægileika og gjafir til að vegsama sig með!
.vegna þess að Guðs orð segir að þú getir, með hjálp Heilags Anda!

Hver er mælikvarðinn sem við berum okkur saman við?
Er það allt sem við sjáum og heyrum í umhverfinu eða er mælikvarðinn okkar Jesús og Orð Guðs?

Að lokum: Styrkist nú í Drottni og í krafti máttar hans. (Ef. 6:10)

Fylltu þig af Orði hans sem er uppbyggilegt og þá muntu fljótlega komast að því að  .. Þú getur!




Megi Drottinn blessa þig og styrkja þig.

Erdna Varðardóttir

17.02.2009 20:35

Er hjarta þitt heilt og óskipt gagnvart Guði?

Í I. konungabók 8:61 segir:
     Hjörtu yðar séu heil og óskipt gagnvart Drottni, Guði vorum, svo að þér breytið eftir lögum hans og haldið boðorð hans.

Þetta vers talaði til mín og er einmitt eitthvað sem ég held að sé mikilvægt að spyrja sig reglulega að: Er hjarta mitt heilt og óskipt gagnvart Guði? Lýsir líf mitt, hegðun, málfar og skoðanir reglum hans og boðorðum?
     Sú mælistika sem Biblían notar á stöðu okkar gagnvart Guði eru boð Drottins í gegnum t.d. Fjallræðuna í Matteusarguðspjalli, Spámennina og Boðorðin 10. Hvernig elskum við Drottinn? Jesús sagði  Ef þér elskið mig munuð þér halda boðorð mín. (Jóh.14:15)

Við skulum skoða nokkur dæmi:
     Fyrsta boðorðið sem nefnt er í 2. mósebók 20. kafla er Ég er Drottinn, Guð þinn, sem leiddi þig út af Egyptalandi, út úr þrælahúsinu. Þú skalt ekki hafa aðra guði en mig.
    
Hefur þú leyft hjarta þínu að dýrka annað en hann? Skiptir það þig máli hvaða augum Guð lítur á þig eða er eitthvað annað sem vegur þyngra? Guðir þessarar aldar heita kannski ekki Baal eða Ra, en ef til dæmis græðgi (mammón - peningar), hroki, dramb, álit annarra, metnaður eða annað situr í hásæti hjarta þíns þá hefur þú dýrkað aðra guði.

Ester drottning var fyrir kraftaverk í þeirri stöðu að geta bjargað þjóð sinni frá tortímingu. Hún hefði getað afneitað Guði, tekið til við að dýrka guði þeirrar þjóðar sem hún bjó hjá og þar með neitað að taka stöðu sína. En hún vissi að með því að vera heil frammi fyrir Drottni, leita hans og treysta á Hann þá væri hún í hans hendi, hvernig sem færi. Í Rómverjabréfinu 8:28 segir að Þeim, sem Guð elska, samverkar allt til góðs. Hún dýrkaði ekki aðra guði. Hún elskaði Guð og hann snéri aðstæðum henni í hag.

Annað boðorðið segir Þú skalt ekki leggja nafn Drottins, Guðs þíns, við hégóma.
     Þetta atriði er orðið svo algengt okkar á meðal að það virðist vera smávægilegt og frekar saklaust að segja "Guð" og "Jesús minn" við hverja upphrópun. En einhver er ástæðan fyrir því að Guð hafði þetta atriði sem eitt af þessum aðal 10! Að nota nafn Drottins sem túlkun á hneykslan, viðbjóði eða öðru er brot á boðorði Guðs. Ekki vanvirða nafn hans sem elskar þig mest af öllu!

5. boðorðið segir Þú skalt ekki morð fremja.  
     Jesús segir í matteusi 5:21-22 [...] Þú skalt ekki morð fremja. Sá sem morð fremur skal svara til saka fyrir dómi.   En ég segi yður: Hver sem reiðist  bróður sínum skal svara til saka fyrir dómi. Sá sem hrakyrðir bróður sinn skal svara til saka fyrir ráðinu og hver sem svívirðir hann hefur unnið til eldsvítis. Hér flokkast reiði, bræði og baktal sem brot á boðorði Guðs. Jesús segir okkur að vera skjót til sátta við andstæðing okkar.

9. og 10 boðorðið fjalla um Þú skalt ekki girnast....
hús, eiginkonu/eiginmann, þræl, ambátt, uxa, asna...hús, vinnu, bíl, fellihýsi, jeppa, utanlandsferðir...og hvað sem þér dettur í hug sem vekur hjá þér girnd í hluti náunga þíns.

Afbrýðisemi og öfund heltekur huga og hjarta! Það gefur færi á biturleika.
     Í 1. Samúelsbók segir frá Sál konungi. Í 18. kafla segir frá því að Sál öfundaðist út í Davíð því konurnar sungu um að Sál hafði drepið sín þúsund en Davíð sín 10 þúsund. Sál var valinn fyrsti konungur gyðinga en hjarta Sáls var ekki heilt gagnvart Guði. Þegar hann fór ekki eftir boði Guðs um að deyða alla Amalekíta og búfénað þeirra, þá hafnaði Guð Sál.  
     Það sem eftirlifði af Amelekítum og eigum þeirra er hægt að sjá sem táknmynd upp á synd í okkar lífi. Synd sem við losum okkur ekki við, viljum kannski halda hluta af þessu eða smá af hinu. Með því leyfum við synd að fylla hluta, ef ekki allt, hjarta okkar.
     Í Malakí 3:8-10 Segir Dottinn: Á maðurinn að pretta Guð, úr því að þér prettið mig? Þér spyrjið: "Í hverju höfum vér prettað þig?" Í tíund og fórnargjöfum.
Mikil bölvun hvílir yfir yður, af því að þér prettið mig, öll þjóðin. Færið alla tíundina í forðabúrið til þess að fæðsla sé til í húsi mínu, og reynið mig einu sinni á þennan hátt segir Drottinn allsherjar, hvort ég lýk ekki upp fyrir yður flóðgáttum himinsins og úthelli yfir yður yfirgnæfanlegri blessun.
      Ananías og Saffíra (postulasagan 5) lugu til um peninga, Satan fyllti hjarta þeirra svo að þau lugu að heilögum anda. Af hverju er hjarta þitt fullt þegar kemur að peningum, tíund og fórn? Heldur þú frá Guði því sem hann á með réttu?
Guð setur kröfu á okkur að vera heilshugar, óskiptar, fráteknar fyrir Hann. Við erum dýru verði keyptar! Við ætlumst til þess að ef við kaupum okkur bíl að vélin sé til staðar - að hann sé ekki bara útlitið og búið. Eða að einbýlishúsið sem við byggðum og lögðum allt okkar í, að það skorti ekki rafmagn og hita. Við ætlumst til þess að það sé íbúðarhæft! Guð vill ekki bara bíða og sjá hvort við ætlum að gefa honum eitthvað af lífi okkar. Hann biðst ekki afsökunar á trufluninni og kveður ef við streitumst á móti því þegar hann vill eiga við okkur og móta okkur!
 
Í Jakobsbréfinu 4:5 segir:  Hann þráir andann í okkur með afbrýði. Hann þráir að við séum íbúðarhæfar fyrir anda sinn! Er eitthvað óeðlilegt að hann ætlist til þess að hjarta okkar sé frátekið fyrir hann? Nei!

Ef þú finnur og sérð af þessum örfáu dæmum að hjarta þitt er ekki heilt fyrir Guð, þá er náð í dag. Hún er ný á hverjum morgni segir í Harmljóðunum 3:23. Í jesaja 59:1 segir að hönd Guðs er ekki svo stutt að hann geti ekki hjálpað og eyra hans ekki svo þykkt að hann heyri ekki. Hann er trúr og sannur og fyrirgefur okkur þegar við komum fram fyrir hann og iðrumst.
     Óvinurinn og ákærandinn, vill ekki að við sjáum andlegt ástand okkar, og þegar við sjáum það reynir hann eftir fremsta megni að halda okkur á sama stað með fordæmingu, sjálfsvorkunn og stöðugri upprifjun á fortíðinni. Drottinn segir í Jesaja  43:18-19  Rennið eigi auga til hins umliðna og gefið eigi gætur að því er áður var. Sjá nú hef ég nýtt fyrir stafni!...
     María Magdalena hefði getað lifað í skugga fortíðarinnar, af ótta við það sem áður var eða menn sem gátu minnt hana á það liðna. En hún þekkti mátt Guðs, hélt sér við hann - var heil í honum. Og hún fékk að bera kveðjuna "Ég hef séð Drottinn!" jóh 20:18

Við þurfum að seilast eftir því sem framundan er. Hvað hefur Guð fyrir þig á þessu ári? Hvað hefur þú fyrir Guð? Tíminn er kominn til að þú takir stöðu þína í líkama Krists. Það getur enginn tekið ábyrgð á andlegu ástandi þínu nema þú sjálf. Hver og ein okkar þarf að heiðra það loforð sem við gáfum í upphafi þegar við gáfum Jesú hjarta okkar - heilt og óskipt!



Kærleikskveðja, Anna Sigríður Snorradóttir
    Flettingar í dag: 42
    Gestir í dag: 26
    Flettingar í gær: 63
    Gestir í gær: 23
    Samtals flettingar: 131824
    Samtals gestir: 40144
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 16:44:52