06.05.2010 21:01

Það er kominn tími til að fara á hnén!

"Þú skalt vegsama Drottin Guð þinn fyrir landið góða, sem hann gaf þér."   5. Mós 8:10

Guð hefur svo sannarlega gefið okkur gott land að búa í. Þrátt fyrir að nú virðist allt vera á vonarvöl í kringum okkur getum við verið viss um að Guð sér fyrir okkur.

Mig langar til að minna á að í mörg ár hafa kristnir einstaklingar beðið fyrir landinu, að Guð megi mæta þjóðinni og taka til í þeirri spillingu sem hefur átt sér stað hér, spillingu sem jafnvel engum datt í hug að væri eins mikil og nú lítur út fyrir að vera.

Núna þurfum við virkilega að skipa okkur í skarðið og biðja fyrir landinu okkar á þessum krítísku tímum sem við erum vitni að. Það er búið að boða til kosninga í vor og ég þrái að sjá fólk í embættum sem vill vinna að þeim málefnum sem er landinu okkar til heilla.

Í 1. Tim 2:2 stendur:
"Biðjið fyrir konungum og öllum þeim sem hátt eru settir til þess að við fáum lifað friðsamlegu og rólegu lífi í guðsótta og siðprýði. "

Við þurfum fólk í stöður og embætti sem vinnur heilshugar að því að þær auðlindir sem Guð hefur blessað landið okkar með verði nýttar vel, ekki í græðgi. Við þurfum embættismenn (og konur) sem þora að játa rétt siðgæði í bæði viðskiptum og líferni og sem þora að hafa skoðanir á réttu og röngu.

Því vil ég hvetja ykkur til að biðja markvisst fyrir því starfi sem nú er verið að vinna og sérstaklega fyrir komandi kosningum. Við viljum að Guð fái að skipa fólk í embætti, í ríkisstjórn, framkvæmdavald, nefndir og stöður sem almenningur veit síst af en hafa gríðarlega mikið gildi landinu okkar til heilla.

Í Rómverjabréfinu 13:1 stendur:
"Hver maður hlýði þeim yfirvöldum sem eru yfir hann sett. Því engin væru yfirvöld ef Guð gæfi þau ekki. Þau sem eru til hefur Guð skipað."  (Hvet þig til að lesa 13 kafla rómverjabréfsins)

Biðjum markvisst næstu vikur og mánuði fyrir ráðamönnum og embættismönnum þessarar þjóðar. Biddu Guð að sýna þér hvað þú átt að kjósa þegar þar að kemur. Ekki skila auðu eða sleppa því að mæta á kjörstað.

Flestir vilja sjá virkilegar breytingar en vita ekki almennilega hvaða breytingar það ættu að vera. Ég held að fáir séu tilbúnir til að vinna þá krítísku vinnu sem nú þarf að taka á í efnahagsmálunum og að taka til í kerfinu. Þeir sem munu vinna að þessum málum þurfa mikla visku og  það besta sem við getum gert er að biðja. Biðja Guð um að velja það fólk sem er eftir hans hjarta og þá munum við sjá raunverulegar breytingar í landinu okkar.

"Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. Því að hver sá öðlast sem biður, sá finnur sem leitar, og fyrir þeim sem á knýr mun upp lokið verða."  Matt 7:7-8

Tökum stöðu okkar og knýjum á í bæn fyrir landinu okkar. Það er bæn sem er Guði að skapi. Treystum Guði fyrir því verki sem er framundan, jafnvel þó við skiljum ekki hvað sé að gerast og jafnvel þó okkur finnist að aðrir hefðu átt að skipa ákveðnar stöður.
Guð lætur ekki að sér hæða. Þess vegna skulum við taka okkar hluta alvarlega og biðja markvisst að Guðs vilji mætti ná fram að ganga.

Meðfylgjandi er boðskapur sem kom til Íslensku þjóðarinnar áramótin 1994-1995.
Þið getið nálgast hann hér.

Erdna Varðardóttir
Flettingar í dag: 43
Gestir í dag: 23
Flettingar í gær: 80
Gestir í gær: 26
Samtals flettingar: 141450
Samtals gestir: 43204
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 12:35:06