31.05.2008 00:00

Það er tími fyrir nýtt upphaf!!

Grein eftir Joyce Meyer    

Ég trúi því að við þurfum reglulega að sjá hin ýmsu svæði í lífi okkar í nýju ljósi. Það eru svæði þar sem við þurfum á nýju upphafi að halda. Það er við þessi svæði sem við þurfum að draga línu sem aðskilur okkur frá því sem við höfum upplifað í fortíðinni og halda áfram með nýja sýn á framtíðina sem við byggjum á sannleikanum í orði Guðs.

Nýtt upphaf krefst þess að við séum viljug að sleppa hendinni af því sem liðið er og ná taki á því sem framundan er. Ég trúi að þetta eigi einnig við um það að byrja upp á nýtt á því hvernig við sjáum okkur sjálf, það hvernig við höldum að Guð sjái okkur og það sem við sjáum fyrir okkur í framtíðinni. Þegar við förum að sjá okkur sjálf á þann hátt sem Guð sér okkur og fáum góða mynd af þeim hlutum sem hann þráir að nái framgangi í lífi okkar og í gegnum okkur, getur viðhorf okkar til lífsins tekið miklum stakkaskiptum.

Hvernig sérðu sjálfa(n) þig?
Sjálfsmynd okkar - það hvernig við sjáum okkur sjálf er mjög mikilvægt. Hún er í raun ljósmynd eða persónulýsing sem við ferðumst með í hjarta okkar og huga. Hún er alveg jafn raunveruleg og myndirnar af börnunum sem mörg okkar ganga með í veskjunum okkar, en hún hefur mun meiri áhrif á okkur. Fyrir mörgum árum hafði ég mjög slæma sjálfsmynd. Mér leið oft eins og ég væri misheppnuð, ómögulegt væri að elska mig og að ég væri ekki jafn góð og annað fólk. Oft leið mér þannig að Guð væri ekki ánægður með mig og að ég myndi aldrei komast yfir það sem gerst hafði í fortíðinni. Vegna þess að ég sá sjálfa mig á rangan hátt, þá bað ég aldrei um það sem var mitt með réttu vegna blóðs Jesú. Ég var ekki nógu djörf og mér fannst ég ekki eiga það skilið.

Guð sýndi mér í 2 Samúelsbók versi 9, söguna um Davíð og fyrirætlun hans að blessa alla þá sem eftir urðu af húsi Sáls konungs. Jónatan, sonur Sáls elskaði Davíð og var líklegast einn af hans nánustu samverkamönnum. Eftir að Jónatan og Sál voru drepnir í bardaga, upphóf Guð Davíð til konungs. Af djúpri hryggð yfir dauða Sáls og Jónatans, spurði Davíð: "Er nú nokkur eftir orðinn af húsi Sáls? Honum vil ég miskunn auðsýna fyrir sakir Jónatans" (2. Sam 9:1).
    
Davíð komst fljótt að því að að Jónatan átti son sem hét Mefíbóset, sem hafði verið fatlaður frá bernsku og var enn á lífi. Hann lét senda eftir Mefíbóset og færa hann fram fyrir sig. Davíð sagði við hann, .... ver þú óhræddur því að ég vil auðsýna þér miskunn fyrir sakir Jónatans, föður þíns og fá þér aftur allar jarðeignir Sáls forföður þíns og þú skalt jafnan eta við mitt borð. Þá laut hann og mælti "hvað er þjónn þinn þess að þú skiptir þér af dauðum hundi eins og mér?"
(2. sam 9:7-8). Með öðrum orðum, Mefíbóset sagði, "Því viltu hjálpa mér? Allt sem ég verðskulda er að skríða um á gólfinu og sleikja upp molana sem falla á gólfið."

Ég trúi að ein af ástæðum þess að Mefíbóset hafði slæma sjálfsmynd var vegna þess að hann var fatlaður. Vegna þess fannst honum hann ekki verðskulda góðmennsku Davíðs konungs. Þú og ég erum kannski ekki líkamlega fötluð en vegna mistaka okkar, vanhæfni og veikleika sjáum við okkur sem fötluð. Og þar sem við sjáum okkur sem eitthvað minna en fullkomin, er ekki auðvelt fyrir okkur að skilja hvernig eða hvers vegna Guð myndi vilja blessa okkur og láta sér annt um okkur eins og hann hefur blessað og látið sér annt um aðra. En eins og Davíð var góður við Mefíbóset vegna Jónatans, þannig er Guð góður við okkur vegna Jesú.
Guð vill ekki að við séum að horfa á allt sem er rangt í fari okkar eða þær syndir sem við höfum drýgt í fortíðinni. Hann vill að við horfum á allt sem er rétt í hans fari. Hebreabréfið 12:2 segir: Beinum sjónum vorum til Jesú, höfundar og fullkomnara trúarinnar.
Því meira sem við einbeitum okkur að göllunum okkar, því líklegri erum við til að endurtaka mistök okkar. Það sem við hugsum og tölum endurtekið um, magnast upp. Það er þess vegna sem við verðum að taka augu okkar af því sem er slæmt í fari okkar og einbeita okkur að því sem er gott í augum Guðs. Guð er að verki á hverjum degi, hann vill breyta okkur þannig að við líkjumst Jesú meir hvern dag. Þegar við getum farið að hámarka kraft Guðs og lágmarka vandamál okkar munum við uppgötva sigurinn í nýjum víddum og fá ferska sýn á það hvernig við sjáum okkur sjálf.

Hvernig heldur þú að Guð sjái þig?
Það hvernig Guð sér okkur og það hvernig við höldum að Guð sjái okkur getur oft verið tvennt ólíkt. En við getum verið þakklát fyrir að Guð heldur ekki aftur af kærleika sínum, viðurkenningu og aðstoð vegna þess að okkur verði á. Hann er ekki að leita að fullkominni frammistöðu - bara að viljugu hjarta sem er undirgefið honum.

Fyrir mörgum árum gaf Guð mér gott dæmi um þetta. Þegar Danny sonur okkar var lítill drengur, var hann ekki mjög snyrtilegur. Þannig að til að hvetja hann til að halda herberginu sínu hreinu og gera skyldur sínar þá útbjuggum við töflu með kerfi sem innihélt krossa og stjörnur. Í hvert skipti sem hann gerði það sem til var ætlast af honum fékk hann kross. Þegar hann var búin að ná ákveðnum fjölda krossa, gáfum við honum stjörnu og þegar hann var búinn að fá ákveðinn fjölda stjarna keyptum við handa honum gjöf. Stundum var hann með mikið af krossum og stjörnum en í annan tíma voru þau mjög fá.

Í nágrenninu var hrekkjusvín sem var alltaf að taka boltann hans Dannys og kasta honum í niðurfallið. Í hvert skipti sem hrekkjusvínið ögraði Danny, kom hann hlaupandi inn í bílskúr hrópandi á pabba sinn. Dave maðurinn minn reif næstum hurðina af hjörunum á leiðinni út til að verja hann.

Dag einn sagði Guð við mig, "hvers konar foreldrar væruð þið ef í hvert skipti sem Danny kæmi hrópandi vegna þess að hrekkusvínið væri á eftir honum mynduð þið fara í herbergið hans til að athuga hversu marga krossa og stjörnur hann væri búinn að vinna sér inn? Þið væruð aumkunarverðir foreldrar ef þið mynduð aðeins vernda hann þegar hann gerði allt rétt. Joyce, en þið Dave gerið það ekki, því heldur þú þá að ég myndi gera það?"

Þetta opnaði augu mín - þetta gaf mér alveg nýja sýn á það hvernig Guð sér okkur. Þegar hrekkjusvín sálna okkar ögrar okkur, lítur Guð ekki fyrst til að sjá hvort við höfum verið að gera allt rétt áður en hann svarar grátbeiðni okkar eftir hjálp. Hann grípur inn í kringumstæður okkar og hjálpar okkur eingöngu vegna þess að við erum börnin hans. Þetta þýðir ekki að hann loki augunum fyrir synd, þegar við gerum eitthvað rangt þá leiðréttir hann okkur. Því að Drottinn agar þann sem hann elskar ..... (Hebr 12:6). Samt sem áður mun hann ekki neita okkur um hjálp þegar við erum í neyð.

Þú og ég þurfum ferska opinberum á frelsi Guðs. Þegar við erum frelsuð, þá sér Guð okkur sem splunku nýja sköpun. Í 2 Korintubréfi 5:17 segir: Ef einhver er í Kristi, er hann skapaður á ný, hið gamla varð að engu, sjá nýtt er orðið til.
Sama tilfinning ferskleika og hreinleika og við upplifum þegar við frelsumst stendur okkur til boða á hverjum degi. Í Harmljóðunum.3:22-23 segir: náð Drottins er ekki þrotin, miskunn hans er ekki á enda, hún er ný á hverjum morgni.........

Í langann tíma hataði ég sjálfa mig vegna þess að ég gat ekki verið það sem ég hélt að Guð vildi að ég væri. En dag einn þá áttaði ég mig á því að ?ég er ekki óþekkt stærð í augum Guðs?. Hann vissi hvað hann var að fá þegar hann kallaði mig. Allt sem ég get gert er að vera samvinnuþýð við Guð þegar hann sýnir mér hvað ég á að gera. Það er enginn möguleiki á því að ég geti breytt mér sjálf.

Það er allt sem Guð ætlast til af okkur - samvinna. Með því að beygja okkur undir hans Heilaga anda innra með okkur, getum við dáið þessum ranga hugsunarhætti og því hvernig við tölum og hegðum okkur og lifað þess í stað á réttan hátt. Guð mun sýna okkur hvernig við eigum að forðast synd, en þegar við syndgum þurfum við aðeins að iðrast, meðtaka fyrirgefningu Guðs og halda áfram.

Hvað er það sem þú sérð framundan?
Guð hefur góð áform fyrir líf okkar allra. Jer. 29:11 segir: "Því að ég þekki þær fyrirætlanir sem ég hef í hyggju með yður - segir Drottinn -  fyrirætlarnir til heilla en ekki óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð." Til þess að við sjáum þetta loforð verða raunverulegt, verðum við að velja að líta frá fortíðinni og líta fram á veginn til þess sem Guð hefur framundan handa okkur.

Þetta minnir mig á það þegar Abram og fjölskylda hans kom til Egyptalands. Bæði hann og Lot frændi hans áttu mikinn bústofn og landið sem þeir bjuggu á var ekki nógu stórt fyrir þá báða. Í viðleitni til að eyða spennunni á milli þeirra, fór Abram til Lots og bauð honum fyrsta val um landið sem var framundan. Lot leit yfir það og valdi vel vökvaða landið í Jórdan dalum.
Guð sagði við Abram þegar Lot hafði yfirgefið hann, ...hef þú upp augu þín og litast um frá þeim stað sem þú ert á til norðurs, suðurs, austurs og vesturs. Því að allt landið sem þú sér mun ég gefa þér og niðjum þínum ævinlega (Fyrsta mósebók 13:14-15,17). Takið eftir að Guð sagði Abram ekki að líta á staðinn þar sem hann var eða staðinn sem Lot hafði tekið. Hann sagði Abram að líta frá þeim stað sem hann var og landið sem hann sæi yrði gefið honum og niðjum hans eftir hans dag. Síðan sagði Guð: "Tak þig nú upp" með öðrum orðum, þá sagði hann við Abram, "það er tími fyrir nýtt upphaf - farðu af stað, haltu áfram skref fyrir skref."

Ég trúi því að Guð sé að segja það sama við þig og mig. Hann vill að við hættum að hugsa hvar við erum í dag og hvar við höfum verið og fara að einbeita okkur að því sem framundan er. Okkar Guð er framsækinn Guð - hann er alltaf á ferðinni. Hann segir okkur í Jesaja  43:18-19, Rennið eigi auga til hins umliðna og gefið eigi gætur að því er áður var. Sjá nú hef ég nýtt fyrir stafni!... Guð vill gera eitthvað nýtt núna strax! Möguleikarnir eru ótæmandi. Það skiptir ekki máli hversu ung, gömul, rík, fátæk, menntuð eða ómenntuð við erum, ekki einu sinni hversu marga veikleika við höfum. Guð getur gert kraftaverk úr klúðri okkar!


Það veltur allt á vali okkar
Það að byrja upp á nýtt hefst og viðhelst þegar við tökum stöðuglega réttar ákvarðanir - það getur enginn gert það fyrir okkur. Í 5. mósebók 30:19 stendur, ...... ég hefi lagt fyrir þig lífið og dauðann, blessunina og bölvunina. Veldu þá lífið til þess að þú og niðjar þínir megi lifa. Í hvert sinn sem þú og ég veljum að treysta orði Guðs og framkvæma í samræmi við það, hljótum við blessun.
Það skiptir ekki máli hversu djúpur pitturinn er sem við erum í. Hönd Guðs er ekki of stutt til að teygja sig til þín og draga þig upp. Ef þú hefur gert mistök skaltu iðrast þeirra, sættast við Guð og halda áfram. Á hverjum degi gefur Guð þér tækifæri til að byrja upp á nýtt með hreint borð. Það eina sem stendur í veginum milli þín og sigursins, ert ÞÚ.
Ég hvet þig til að sjá sjálfa(n) þig á þann hátt sem Guð sér þig - sem réttlætta(n) fyrir Jesú krist. Hættu að hugsa um fortíðina og opnaðu augu þín fyrir því sem Guð vill gera í dag. Í honum eru engar blindgötur ? aðeins tími fyrir nýtt upphaf.


Tekið úr Enjoying everyday life, blaði Joyce Meyer, janúar 2007.
Þýðing Alís Inga Freygarðsdóttir.

Flettingar í dag: 43
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 63
Gestir í gær: 23
Samtals flettingar: 131825
Samtals gestir: 40145
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 19:06:36