31.05.2008 23:00

Hvernig á að stúdera Biblíuna

How to study the Bible
Eftir Joyce Meyer

Af öllu því sem ég hef lært á göngu minni með Guði í gegnum árin hefur það að læra að lesa Biblíuna verið það mikilvægasta. Það er engin bók á jörðunni sem jafnast á við hana í visku eða lífsbreytandi sannleika.

Aðferðir við að rannsaka Guðs orð.
    Efnisatriði - að fylgja ákveðnu efni í gegnum ritninguna.
    Persónuskoðun - að skoða líf einstaklinga í ritningunni.
    Skoða hverja bók - djúp skoðun á hverri bók Biblíunnar.
    Mikilvægir kaflar / ritningarstaðir - að kynnast vel gullkornum úr ritningunni.
    Minnisvers - að leggja vers á minnið.

Tæki sem mælt er með.
    Uppfletti eða tilvísunar Biblía (Reference Bible) - t.d. Thompson Chain Reference     eða Dakes Reference Bible.
    Mismunandi þýðingar á Biblíunni - íhugið að fá ykkur Amplified Bible, King James     útgáfu, Revised Standard úgáfuna eða The Living Bible, The Message.
    Biblíu orðabók - t.d. Vine's Complete Expository Dictionary of Old and New Testament words.
    Orðalykil - t.d. Strong's Exhaustive Concordance of the Bible.
    Aðrar orðabækur eins og enska og/eða íslenska orðabók.

Hvort sem þú hefur aldrei tekið upp Biblíuna eða hefur lesið Orðið í langan tíma, hefur þú hugsanlega spurningar á borð við "Hvað þýðir það að stúdera orðið? Hversu oft ætti ég að gera það? Hvað ætti ég að stúdera? Hvernig á ég að stúdera?" Vegna náðar Guðs trúi ég að þessi grein muni svara einhverjum af þeim spurningum sem þú hefur verið að spyrja.

Hvað þýðir það að stúdera orðið?
Orðið að stúdera þýðir að læra utan að, rannsaka vandlega, festa hugann við ákveðið efni eða að lesa og rannsaka með þeim tilgangi að að fá dýpri skilning. Það að lesa Biblíuna er gott og góður staður til að byrja á, þó er það að stúdera ritninguna betra vegna þess að það leyfir leyndum sannleika Guðs í Orðinu að smjúga inn í sálu okkar og anda. Þegar við lesum Orðið fáum við upplýsingar. En þegar við stúderum Orðið fáum við opinberun.
(Í íslenskri orðabók þýðir orðið að stúdera, að kynna sér eitthvað rækilega, velta einhverju fyrir sér, íhuga. To study þýðir m.a. nám, lærdómur, fræðiiðkan, athugun, rannsókn, læra, nema, rannsaka, athuga, kanna, lesa, læra utanbókar, leggja á minnið, hugleiða. Erfitt er að finna eitthvað eitt orð í íslensku sem nær yfir þetta og því varð orðið stúdera ofan á. Innskot þýðanda).

Hversu oft ætti ég að stúdera Orðið?
Ég trúi að eitt af því mikilvægasta sem þú og ég getum gert til að dýpka samfélag okkar við Guð sé að taka frá tíma á hverjum degi til að skoða Orð Hans. Fyrir mig er sá tími snemma á morgnanna. Áður en ég byrja á nokkru öðru, þá gef ég Guði "fyrstu ávexti" dagsins míns. Þá er hugur minn skýrastur og mér finnst ég vera ferskust. Fyrir þig, gæti þinn besti tími verið rétt áður en þú ferð að sofa eða í hádeginu. Hvenær sem þinn besti tími er, vertu þá viss um að gefa Guði fyrstu ávexti hans. Þetta er það sem Hann vill og á skilið. Ef við höfum Hann númer eitt í lífi okkar, segir Hann að Hann muni sjá um allt annað sem við þörfnumst (Matt. 6:33).

Hversu mikinn tíma ætti ég að gefa Guði?

Það er ekki gefinn nein ákveðin tímalengd. Í raun, segir Biblían okkur aldrei frá hversu lengi við eigum að stúdera. Hún segir okkur bara að stúdera Orðið reglulega og við munum hljóta blessun (Jós 1:8, Sálm 1:2). Mér finnst gott að líkja því að stúdera Orðið við að borða. Þegar ég sest niður til að borða máltíð, þá borða ég þangað til ég er orðin södd. Það sama á við um að stúdera Orðið. Þegar ég sest niður til að stúdera þá dvel ég venjulega í Orðinu þangað til ég finn að ég er mettuð í anda mínum. Ef þú ert byrjandi í að stúdera Orð Guðs, gætir þú orðið södd/saddur eftir aðeins tíu eða fímmtán mínútur og það er allt í lagi. Tíu eða fimmtán mínútur geta verið allur sá tími sem þú hefur að gefa Honum núna. Gefðu honum bara þann tíma sem þú átt og það sem þér finnst í anda þínum að Hann vilji að þú gefir Honum. Það mun snerta hjarta Guðs og breyta lífi þínu.


Hvaða hluta Biblíunnar ætti ég að stúdera?
Ég trúi að besta svarið sem ég get gefið þér sé, "Hvar þarfnastu mestrar hjálpar? Á hvaða sviði lífs þíns ertu að glíma við vandamál?" Þar er besti staðurinn til að byrja að stúdera. Áttu í erfiðleikum með skapsmunina? Ertu óþolinmóð(ur)? Þarftu að taka ákvörðun um eitthvað? Það sem gott er að gera er að finna ritningarvers sem tekur á þeim aðstæðum sem þú ert að takast á við í lífi þínu og þú þarfnast hjálpar með.

Hugsaðu um það. Ef þú færð höfuðverk ferðu þá í sjúkrakassann og dregur fram vaselín og smyrð því á höfuðið á þér? Ef þú skerð þig á hendinni, tekur þú þá blóðþrýstingslyf til að stoppa blæðinguna? Að sjálfsögðu ekki. Þú myndir líklegast biðja og síðan nota viðeigandi lyf á þetta tiltekna sár sem þú hefur. Ég trúi að við þurfum að gera það sama við andleg sár okkar.
Segjum að þú eigir í vandræðum með þolinmæði. Ég held að við eigum það öll á tímum. Leiðin til að ná sigri á þessu sviði er að finna út hvað Biblían segir um það. Það fyrsta sem ég sting upp á að þú gerir er að fletta aftast í Biblíuna þína þar sem oftast er orðalykill. Orðalykill er listi af ritningarversum sem raðað er í starfrófsröð og með mismunandi efnistitlum. Flettu upp á orðum eins og þolinmæði og óþolinmæði. Þegar við finnum þau, er listi af ritningarversum þar undir. Fáðu þér glósubók og skrifaðu niður ritningarversin þannig að þú getir stúderað þau. (Í íslensku þýðingunni er ekki eins nákvæmur listi og í mörgum öðrum þýðingum, en til eru ýmsir Biblíulyklar, þ.á.m.íslenskur. Eins eru listar fremst í Nýja Testamentum Gídeonsmanna sem ýmsum góðum yfirskriftum. Svo er alltaf hægt að nota Biblíuna á netinu. Innskot þýðanda).

Annað sem þú getur gert til að fá dýpri skilning er að fá þér góða orðabók og fletta upp orðunum þolinmæði og óþolinmæði. Þegar þú hefur fundið skilgreiningarnar, skaltu skrifa þær í glósubókina þína. Skilgreiningunum fylgja gjarnan samnefnarar þeirra orða sem þú ert að stúdera. Samnefnararnir eru fleiri orð sem þú getur flett upp í orðalyklinum þínum til að finna ritningarvers tengd því málefni sem þú ert að stúdera.

Þegar þú lest í gegnum ritningarstaðina munu sumir þeirra eins og lifna við og "stökkva upp úr" blaðsíðunum. Þetta eru þeir staðir sem ég ráðlegg þér eindregið að skrifa niður í glósubókina þína þannig að þú getir hugleitt þá og lagt þá á minnið.


Skiptir máli hversu mörg vers eða kafla ég stúdera á hverjum degi?
Ekki endilega. Þú og ég getum tekið inn heilmikið af upplýsingum og samt sem áður ekki meðtekið þær. Að meðtaka þýðir að skilja eða geyma eða ná taki á merkingu orðsins í huganum. Við verðum að hægja á okkur og taka okkur tíma til að raunverulega skilja það sem við erum að lesa. Að öðrum kosti er erfiði okkar til lítils.
Fyrir mörgum árum ætlaði ég að lesa Biblíuna á einu ári eftir ákveðnu kerfi. Ég þurfti að lesa um sex kafla á dag til að ná markmiði mínu. Ég var mjög spennt yfir þessu verkefni. Ég hafði Biblílestraráætlunina mína hangandi í eldhúsinu mínu þannig að allir vinir mínir gætu séð hana og í lok hvers dags merkti ég við það sem ég hafði lesið. Mér fannst ég svo andleg vegna þess að ég var að lesa Biblíuna á einu ári. Vandamálið var að ég skildi minnst af því sem ég var að lesa.

Ég gleymi aldrei þegar ég hafði dregist aftur úr í áætluninni um þrjátíu og sex kafla. Dag einn einsetti ég mér að lesa allt það sem mig vantaði uppá til að ná inn í áætlunina aftur, ég las og las eins hratt og ég gat. Í lok dagsins var ég enn dálítið á eftir en ég hafði náð að lesa mjög mikið. Á þeim punkti heyrði ég heilagan anda spyrja mig, "Jæja, hvað lærðir þú svo í dag, Joyce?"
Ég svaraði, "Jæja, ah, ég las þetta mikið í orðskviðunum, þetta mikið í sálmunum, þetta mikið í gamla testamentinu og þetta mikið í nýja testamentinu." Heilagur andi endurtók spurninguna "Nei, nei, nei. Hvað lærðir þú?"
Það er sorglegt að segja frá því en ég hafði ekki lært neitt þennan dag. Það var þá sem ég heyrði Drottinn segja, "Joyce, ég myndi frekar vilja að þú hugleiddir eitt ritningarvers þangað til þú skilur það alveg en að þú lesir marga kafla bara til að þér líði vel með sjálfa þig." Guði er ekki eins umhugað um magnið sem við lesum eins og honum er um gæði þess sem við lesum og stúderum.

Með þessu er ég ekki að segja að það að lesa Biblíuna á einu ári sé rangt. Ef þér finnst í hjarta þínu að Guð vilji að þú gerir það, gerðu það þá endilega. Hægðu á þér og reyndu ekki að fylla kvóta. Einbeittu þér að einu efni í einu. Þetta mun gefa huga þínum tækifæri til að meðtaka ríkidæmið í orði Guðs og leyfa Heilögum anda að tengja ritninguna við  kringumstæður þínar og inn í líf þitt.  

Hvað er það að hugleiða Orðið og af hverju er það mikilvægt?
Að hugleiða Orðið þýðir að dvelja með hugann við það, velta því fram og til baka í huga okkar, muldra það meðan við drögum andann. Það er eins og að "tyggja" kjötið í Ritningunni, andlega talað, til að nýta að fullu öll næringarefnin. Það að hugleiða Orðið er mikilvægt því það er lykillinn að árangri á öllum sviðum lífsins.

Jósúa 1:8 staðfestir þetta: "Eigi skal lögmálsbók þessi víkja úr munni þínum, heldur skalt þú hugleiða hana um daga og nætur, til þess að þú gætir þess að gjöra allt það, sem í henni er skrifað, því að þá munt þú gæfu hljóta á vegum þínum og breyta viturlega."

Sálmur 1:1-3 marg endurtekur kraft þess að hugleiða, og lýsir því yfir að líf okkar muni njóta blessunar, hamingju, framgangs, vera öfundsvert og ávaxtaríkt. Þegar við hugleiðum Ritninguna munu lygar óvinarins verða þurrkaðar út og skipt út með óbreytanlegum, lífgefadi sannleika Guðs Orðs!

Hvað gerist þegar ég ver tíma reglulega í það að stúdera Orð Guðs?
Þú breytist. Ég get ekki sagt með nógu sterkum orðum hversu mikið líf mitt hefur batnað síðan ég byrjaði að stúdera Orð Guðs reglulega. Það hefur umbreytt því hvernig ég hugsa á svo mörgum sviðum að ég er ekki sama manneskjan lengur. Orð Guðs mun gera það sama fyrir þig líka.

Í Jóhannes 8:31-32 segir Jesús.... Ef þér eruð stöðugir í orði mínu, eruð þér sannir lærisveinar mínir og munuð þekkja sannleikann, og sannleikurinn mun gjöra yður frjálsa." Þegar þú og ég erum stöðug í Orðinu breytumst við og verðum frjáls frá öllu því sem vill binda okkur. Hugsanir okkar breytast. Orð okkar breytast. Viðhorf okkar breytist. Verk okkar breytast. Frá einni dýrð til annarar, þá höldum við áfram að breytast í Guðs mynd (2. kor. 3:18).

Hversu langan tíma mun það taka að sjá einhverjar breytingar?
Ég hef heyrt fólk segja að til að koma sér upp nýjum vana þurfi að gera sama hlutinn samfellt í að minnsta kosti tuttugu og einn dag. Þess vegna skora ég á þig að stúdera Orð Guðs staðfastlega í það minnsta þrjár vikur í röð. Ég trúi að þú munir verða undrandi á útkomunni.

Mundu: "Gætið að, hvað þér heyrið. Með þeim mæli, sem þér mælið, mun yður mælt verða og við yður bætt." Mark 4:24

Guð blessi þig þegar þú stúderar Orðið Hans!
 

Tekið úr ENJOYING EVERYDAY LIFE, blaði Joyce Meyer, mars 2007.
Þýðing Alís Inga Freygarðsdóttir.



Flettingar í dag: 44
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 63
Gestir í gær: 23
Samtals flettingar: 131826
Samtals gestir: 40145
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 19:27:53