03.06.2008 00:00
Að lesa Orðið og heyra Guð tala til sín í gegnum það
Aðferð Anne Graham Lotz við að stúdera Biblíuna
Til að stúdera Biblíuna þarf:
- Biblíu
- Blýant eða penna
- Glósubók eða eitthvað til að skrifa á
- Tíma til að lesa Biblíuna. Það hafa allir mjög mikið að gera og því þarf að búa til tíma til að stúdera Biblíuna. Anne Graham Lotz vaknar snemma á morgnanna til að stúdera Biblíuna. En segir að það hvenær þú stúderar Biblíuna sé ekki aðalatriðið heldur það að þú gerir það daglega. Hvort sem það er snemma á morgnanna, í hádeginu eða á kvöldin. Mæltu þér mót við Guð og stattu við það rétt eins og þú mælir þér mót við lækninn þinn og mætir í þann tíma. Það er hvatning hennar.
Áður en þú byrjar að lesa skaltu alltaf taka örlítinn tíma til að biðja til Guðs. Biddu Guð að opna Orðið fyrir þér.
Biblían er yndisleg sögubók, hún er ljóðabók, spádómabók en hún er líka yfirnáttúruleg bók.
Aðferðin fellst í að spyrja sig þriggja spurninga við lestur Orðsins, þær eru:
- Hvað segir textinn? Til að svara þessari spurningu les hún textann vandlega yfir a.m.k. 2svar. Þegar hún les í annað sinn gerir hún lista yfir staðreynirnar í textanum. Hún setur þær ekki í sín eigin orð, heldur dregur þau bara út úr textanum og leitar að nafnorðunum og sagnorðunum.
- Hvað þýðir textinn? Til að svara þessari spurningu fer hún í staðreyndalistann úr spurningu eitt og veltir fyrir sér hvað hún geti lært af þeim. Hún leitar að lærdómi eða andlegu lögmáli (prinsip) sem hún getur dregið af þessu. Til að hjálpa okkur getum við spurt okkur hvað er fólkið að gera sem það á að vera að gera og hvað er fólkið að gera sem það á ekki að vera að gera. Með öðrum orðum er hér fordæmi sem ég get tileinkað mér? Er viðvörun til að fara eftir? Er boð sem við eigum að fara eftir? Svona fer hún staðreynd fyrir staðreynd yfir versin og meðtekur þann lærdóm sem draga má af því sem hún les. Það geta verið fleiri en einn lærdómur af hverri staðreynd. Því er ekki um rétt eða rangt svar að ræða svo framarlega sem við höldum okkur við staðreyndirnar í versinu. Vegna mismunandi bakgrunns sjáum við hlutina í mismunandi ljósi og komum til með að læra mismunandi hluti út úr sama versinu, vegna þessa er mjög gefandi að stúdera Biblíuna með öðru fólki. Við getum lært hvert af öðru.
- Hvað þýðir textinn fyrir mig? Til að svara þessari spurningu fer hún í listann yfir það sem hún lærði af staðreyndunum þ.e. spurningu tvö. Hún mótar spurningar úr því sem hún hefur lært. Spurningar sem hún vil spyrja sjálfa sig, fjölskyldunana sína eða vini.
Dæmi um þessa aðferð eru:
En Samúel þekkti ekki enn Drottin, og honum hafði ekki enn birst orð frá Drottni. Þá kallaði Drottinn enn á Samúel, í þriðja skiptið. Og hann reis upp og fór til Elí og sagði: "Hér er ég, því að þú kallaðir á mig."Þá skildi Elí, að það var Drottinn, sem var að kalla á sveininn. Fyrir því sagði Elí við Samúel:"Far þú og leggstu til svefns, og verði nú á þig kallað, þá svara þú:,Tala þú, Drottinn, því að þjónn þinn heyrir.'" Fór Samúel þá og lagðist til svefns á sínum stað. Þá kom Drottinn og gekk fram og kallaði sem hin fyrri skiptin: "Samúel! Samúel!" Og Samúel svaraði: "Tala þú, því að þjónn þinn heyrir."(1. Sam. 3:7-10).
1. Staðreyndir ítextanum:
Vers 7: Samúel þekktiekki Guð eða Orð Hans.
Vers 8: Í þriðjaskiptið kallaði Guð á Samúel og hann fór til Elí. Elí skildi að Guð var að tala.
Vers 9: Elí sagði Samúel að leggjast niður og ef Guð talaði aftur, svara þá "ég er að hlusta".
Vers 10: Samúelkallaði, "talaðu Drottinn, þjónn þinn heyrir".
2. Hvað þýðir textinn?
Vers 7: Samúel var í musterinu og því getum við dregið þá ályktun að það geti verið fólk í kirkjunni sem ekki þekkir Guð og Orð Hans.
Vers 8: Guð talaði við Samúel en Hann þekkti ekki rödd Hans. Guð talar oft til okkar en við þekkjum ekki rödd Hans.
Vers 9: Einn lærdómurinn gæti verið að við þurfum kennslu í því hvernig við eigum að heyra rödd Guðs.
Vers 10: Einn lærdómurinn gæti verið að Guð talar til okkar persónulega og við þurfum að hlusta.
3. Hvað þýðir textinn fyrir mig?
Vers 7: Hversu vel þekki ég Drottinn og Orð Hans? Þekkir fólkið mitt Drottinn og Orð Hans?
Vers 8: Er Guð að tala til mín og þekki ég rödd Hans.
Vers 9: Er ég viljug að fylgja fyrirmælum um hvernig á að hlusta á rödd Guðs.
Vers 10: Hversu opin er ég fyrir því að Guð tali til mín þegar ég les Biblíuna?
Anne Graham Lotz segir svo frá að hún lesi Biblíuna sína með þessari aðferð á hverjum morgni. Hún segir að Guð tali ekki til hennar á hverjum morgni. "En morgnarnir sem Hann talar til mín eru fleiri en þeir sem Hann gerir það ekki" segir hún. "Hann gefur mér orð uppörvunar og leiðbeiningar og mjög oft hefur Hann talað við mig um hluti sem eru í hjarta mínu en ég hef jafnvel ekki deilt með neinum, en þegar ég les Biblíuna þá opinberar Hann þessa leyndu hluti í hjarta mínu".
Þýðing, Alís IngaFreygarðsdóttir.
