22.01.2009 10:08
Hvers vegna þurfti Jesús að koma í heiminn?
Frá upphafi sköpunarinnar hafði Guð áætlun um samfélag sitt við manninn. Hann skapaði manninn í sinni mynd þ.e. með þá eiginleika sem Guð hefur. Hann gerði manninn æðri annari sköpun með því að gefa honum frjálsan vilja til að velja og hafna, hafa skoðanir og tilfinningar eins og að elska og finna til. Við erum sköpuð með þann eiginleika að eiga samfélag við Guð en því miður þá fór ekki allt nákvæmlega á þá leið sem Guð hafði áætlað í upphafi.
Vegna þess að maðurinn hafði frjálsan vilja valdi hann að óhlíðnast Guði og þar með kom syndin inn í heiminn, með öðrum orðum það varð uppreisn gegn Guði og því sem hann hafði sagt. (sjá 1. Mósebók 1-3 kafla)
En hvers vegna hatar Guð syndina svona mikið?
Jú syndin er það sem aðskilur okkur frá Guði. Synd eyðileggur okkur. Hún drepur og eyðir því sem Guð elskar og setur það í þrældóm sem Guð hafði ætlað að væri frjálst.
Guð getur ekki verið nálægt synd. Hvers vegna ekki? Jú vegna þess að Guð er algerlega heilagur og fullkominn og umber ekki neitt óhreint. Ef hann myndi geta umborið eitthvað óhreint þá væri hann að brjóta sína eigin grundvallarreglu og þá væri hann ekki fullkomlega heilagur. Guð getur aldrei sagt "Ég horfi bara fram hjá þessu, þetta er nú svo lítið".
Við tökum hins vegar syndina oft á tíðum léttvægt og ætlumst til þess að Guð fyrirgefi okkur bara aftur og aftur. Við hugsum sem svo "Þetta skiptir engu. Guð fyrirgefur mér - hann er svo náðarríkur" Með þessu móti erum við sífellt að daðra við syndina sem er versti óvinur Guðs. Að sjálfsögðu fyrirgefur Guð en við eigum ekki að syndga upp á náðina. (sjá Róm. 6:1)
En þrátt fyrir að aðskilnaður við Guð kom inn með syndafallinu þá þráði Guð samt að eiga samfélag við sitt fólk. Hann gerði ýmsa sáttmála við manninn t.d. við Abraham (sjá 1. Mós. 15-17 kafli), sáttmálann við Móse á Sínaífjalli (sjá 2. Mós. 19-20 kafli), hann bjó meira að segja í musterinu eftir að það var byggt alveg þar til hann þurfti að yfirgefa það vegna vonsku og synda mannanna.
Þrátt fyrir allt alls kyns lög og reglur tókst mannkyninu ekki að standa við sinn hluta sáttmálans. Vegna þess að við erum fædd undir syndugu eðli getum við ekki réttlætt okkur sjálf. Við getum ekki í okkar eigin mætti verið jafn heilög og Guð því það er okkur eðlilegt að gera mistök og velja ranga hluti.
Þess vegna kom Guð til jarðarinnar sem Jesús Kristur og varð maður. (sjá Jóh.1:16-18). Jesús var reiðubúinn að taka á sig þína og mína synd með því að negla hana á krossinn. Vegna þess að Jesús var syndlaus gat hann sigrað dauðann og reis upp aftur á þriðja degi og situr nú við hlið Guðs á himnum. (Hebreabréfið 12:2)
Kristur Jesús er sá sem dáinn er. Og meira en það: Hann er upprisinn, hann er við hægri hönd Guðs og hann biður fyrir okkur. Hver mun gera okkur viðskila við kærleika Krists? Róm 8:34-35
Í gegnum Jesú Krist eigum við aðgang að Guði því Jesús brúaði það bil sem kom milli Guðs og manna með syndafallinu í upphafi. (1.Jóhannesarbréf 1:1-2)
Við vitum að okkar gamli maður dó með honum á krossi til þess að líkami syndarinnar yrði að engu og við værum aldrei framar þrælar syndarinnar. Róm 6:6
Við verðum að átta okkur á því að Jesús hafði ekki tilunnið sér þá refsingu að deyja kvalarfullum dauðdaga á krossi. Dauðinn voru örlög okkar en ekki hans. Jesús valdi að deyja fyrir okkur vegna þess að hann elskaði okkur og þráði að eiga samfélag við okkur eins og í upphafi var áætlað.
Þess vegna getur hann búið ynnra með okkur fyrir heilagan anda þegar við meðtökum frelsisverk hans. Hann getur varla verið nær okkur en það - er það?
Við verðum að gera okkur grein fyrir því að Guð elskar okkur. Það er alveg sama hvað við höfum gert eða ekki gert Guð elskar okkur samt en hann hatar hins vegar syndina.
Jesús sagði: "Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins nema fyrir mig." Jóh. 14:6

Allir hafa syndgað og skortir Guðs dýrð, og þeir réttlætast án verðskuldunar af náð hans fyrir endurlausnina, sem er í Kristi Jesú. Róm 3:23-24
Það að við eigum aðgang að Guði er bara fyrir náð. Við þurfum að gera okkur grein fyrir því að við munum aldrei nokkurn tímann geta greitt fyrir það sem Jesús gerði, hvorki með góðu líferni, stórum gjöfum í góðgerðarmál eða með nokkru öðru vinnuframlagi. Það eina sem hægt er að gera er að taka við þeirri gjöf sem Guð gaf okkur, þ.e. frelsisverk Jesú Krist.
Jesús gerði það fyrir mig og þig til að við gætum átt greiðan aðgang að Guði. Við erum sköpuð með æðri tilgangi en að vinna, sofa og borða. Við erum sköpuð til að eiga samfélag við lifandi Guð sem skapaði himinn og jörð.
Drottinn blessi þig.

Skrifað af Erdna Varðardóttir