10.04.2009 00:16
Þú getur!
Hver kannast ekki við að hafa hugsað eða jafnvel talað um sjálfan sig á eftirfarandi hátt: "Ég get aldrei gert neitt rétt! Það eru allir miklu klárari og duglegri en ég! Allt sem ég geri gera aðrir betur!"
Jú ég held að við flestar könnumst við að hafa hugsað svona um okkur einhvern tímann og jafnvel talað okkur niður. En allir hafa eitthvað gott fram að færa því við erum jú einu sinni skapaðar í Guðs mynd og það var hann sem gaf okkur hæfileika okkar.
Ef við komum fram fyrir Guð með það sem við höfum í einlægni, getur hann gert eitthvað stórkostlegt úr því. Eins og þegar Jesús mettaði yfir 5000 manns með tveim brauðum og 5 fiskum. (sjá Matteus 14. kafla)
María móðir Jesú var mjög ung. sennilega um 14-16 ára þegar hún var beðin um að taka að sér mikilvægt hlutverk. Hún fékk boð frá Guði um að fæða frelsara heimsins. (Sögu hennar má finna í fyrstu köflum allra guðslpjallanna)
Í þessum heimshluta tíðkaðist að vera með fyrirframákveðið hjónaband þ.e. foreldrar brúðarinnar ákváðu hvaða mann dóttir þeirra átti að giftast. María var s.s trúlofuð manni sem hét Jósef.
María hafði val um að segja já eða nei þegar engillinn kom með boðin til hennar. Ef maður skyggnist inn í veraldlegar kringumstæður hennar þá voru þær einhvern veginn á þessa leið:
o Hún var trúlofuð manni sem hafði sennilega gert samning við foreldra hennar um að eiga hana.
o Hún átti á hættu að missa allt ef hún segði já við verkefninu
o Missa frá sér ástina sína
o Framtíðina sem hún hafði séð fyrir sér
o Orðstýr sinn og Jósefs um að eiga barn utan hjónaband
En María ákvað að segja já því hún trúði og treysti Guði fyrir lífi sínu. Ákvörðun hennar hafði áhrif á allan heiminn og allt mannkyn enn í dag.
María gerði það sem hún gat. Hún ákvað að ganga með barnið, fæða að og ala það upp og Guð sá um afganginn.
Hvað er það sem þú getur gert? Hugsaðu vel um það hvaða eiginleika þú hefur og hvernig þú getur notað þá Guði til heiðurs.
Ef Guð er með okkur hver er þá á móti okkur?
En honum, sem í oss verkar með krafti sínum og megnar að gera langt fram yfir allt það sem vér biðjum eða skynjum, honum sé dýrð í kirkjunni og í Kristi Jesú með öllum kynslóðum um aldir alda. Amen. Efesus 3:20-21
Þú getur.
..Haft áhrif á huga þinn!
o Á það hvernig þú horfir á sjálfa þig eða á hvað þú horfir
o Á það hvernig þú hugsar um sjálfa þig
Þú getur.
..Haft áhrif á talsmáta þinn!
o Hvernig þú talar um sjálfa þig eða aðra
o Talarðu neikvætt eða niður til þín?
Gerirðu lítið úr hæfileikum þínum þegar fólk hrósar þér?
Þú getur.
..Haft áhrif á hjarta þitt!
..Beðið fyrir þeim sem þurfa á því að halda!
..Vitnað fyrir þeim sem Guð minnir þig á annað hvort með beinum vitisburði í orði eða með verkum þínum og framkomu!
Þú getur.
..Verið fráls til að vera þú sjálf
..Verið sú kona sem Guð hefur kallað þig til að vera (eiginkona, móðir, amma, frænka, vinkona, tengdadóttir o.s.frv.)
....Þorað að standa með sjálfri þér og því sem þér finnst - þínum skoðunum!
..Þrátt fyrir fortíð þína og þrátt fyrir að mistök þín virðast vera eins og himinhátt og óklífanlegt fjall!
Þú getur.
. vegna þess að Guð skapaði þig sem þig með alla þína kosti og galla!
..vegna þess að Guð gaf þér hægileika og gjafir til að vegsama sig með!
.vegna þess að Guðs orð segir að þú getir, með hjálp Heilags Anda!
Hver er mælikvarðinn sem við berum okkur saman við?
Er það allt sem við sjáum og heyrum í umhverfinu eða er mælikvarðinn okkar Jesús og Orð Guðs?
Að lokum: Styrkist nú í Drottni og í krafti máttar hans. (Ef. 6:10)
Fylltu þig af Orði hans sem er uppbyggilegt og þá muntu fljótlega komast að því að .. Þú getur!
Megi Drottinn blessa þig og styrkja þig.
Erdna Varðardóttir

Skrifað af Erdna Varðardóttir