JesúKonur er starf fyrir konur á öllum aldri sem vilja meira!

Við þráum að kristnar konur um allt land, óháð kirkjudeildum rísi upp og taki stöðu sína sem JesúKonur og saman getum við verið einn her sem boðar Jesú á landinu okkar. 

 
Yfirskrift starfsins er tekin úr Sálmi 68:12
"Konurnar sem sigur boða eru mikill her".


Markmið
   JesúKonur hvetja konur til að eignast dýpra samfélag við Jesú og verða sterkari einstaklingar í gegnum lestur Biblíunnar og bæn.
    JesúKonur vilja stuðla að uppbyggilegri kennslu á samverustundum og í heimahópum.
    JesúKonur hvetja konur til að virkja þær gjafir sem Guð hefur sett í líf þeirra og þjóna lifandi Guði í krafti og kærleika.
    Við viljum hvetja konur til að vera JesúKonur í sínu umhverfi með því að vera góðilmur Krists í samfélagi okkar.
    JesúKonur vilja stuðla að aukinni siðferðisvitund í landinu okkar með því að vera rödd Guðs á vinnustöðum, í skólastarfi og í fjölmiðlum.
    Við þráum að sjá kraft Guðs starfa í landinu okkar í gegnum hversdagshetjur á borð við mæður, eiginkonur, systur, vinkonur, ömmur og frænkur sem hafa yfirskriftina "JesúKonur" yfir lífi sínu.
    JesúKonur vilja leiðast af Heilögum Anda.


Staðbundnir hópar
   JesúKonur eru með starfssemi á tveim stöðum á landinu, á Akureyri, og í Reykjavík. Upplýsingar um starfið og dagskrá má finna hér.
 

 Reykjavík 



Flettingar í dag: 43
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 63
Gestir í gær: 23
Samtals flettingar: 131825
Samtals gestir: 40145
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 19:06:36