ÞAÐ ER ÞESS VIRÐI AÐ BÍÐA!
Lydia Playfoot frá West Sussex á Englandi er nú 17 ára. Hún ákvað snemma að hún ætlaði að bíða með kynlífið þar til hún hafði lofað að "elska og virða í meðlæti sem mótlæti". Til að gera þetta á táknrænan hátt, ber hún einfaldan silfurhring á baugfingri vinstri handar. Hringurinn er ástæða þess að bæði skólinn hennar og Breski Hæstirétturinn neitar henni nú um skólavist!
Eftirfarandi atburðir gerðust snemma árs 2007
|
Lydia er ósköp venjuleg 17 ára gömul ensk unglingsstúlka sem ásamt 11
öðrum vinkonum sínum frá Millias Schooll í Horsham í West Sussex ákváðu
að sína afstöðu sína með að bíða með kynlíf þar til þær væru búnar að
gifta sig. -"Það að bera hringinn í skólanum var mín leið til að opinbera trú mína
í skólanum. Hann segir öðrum m.a. hvað trúin mín inniheldur, og
Biblían kennir mér hreint og klárt að kynlíf fyrir hjónaband sé synd.
Áætlun Guðs fyrir okkur felur í sér mun betri hluti." Þetta skrifar
Lydia m.a. á bloggsíðu sinni. Samkvæmt talsmanni skólans var hringurinn brot á heilsu og öryggisreglum skólans ásamt því að vera brot á skartgripa stefnu skólans. Samt sem áður ákváðu Lydia og vinkonur hennar að bera hringana sína, alveg eins og aðrir trúarhópar máttu bera táknræna skartgripi og múslimar máttu bera höfuðslæður. |
Það er vilji Guðs að þið verðið heilög. Hann vill að þið haldið ykkur frá óskírlífi, að sérhvert ykkar temji sér að halda líkama sínum í helgun og heiðri
1. Þess. 4:3-4
(Þetta biblíuvers er grafið inn í hringana.)
Skart
Þegar Lydia fór ekki eftir fyrirmælum skólans var hún rekin og látin klára námið á eigin vegum. Til að sýna fram á að skólanum væri í nöp við kristna hélt hún áfram að mæta ótrauð í kennslustundir.
Síðastliðið sumar stóð hún svo í hæstarétti og varði þá skoðun sína að halda sér hreinni fyrir hjónaband, því það samsræmdist trúarskoðunum hennar. Dómarinn Mr. Justice Supperstone dæmdi skólanum í vil.
-"Mér er alveg sama hvort þessi hringur hafi táknræna merkingu, hann er skart" sagði dómarinn.
Þessi ummæli dómarans fékk lögfræðingafélagið, Public Policy Officer of the Lawyers, til að mótmæla. Talsmaður lögfræðingafélagsins, Andrea Williams, vill meina að það sé fásinna að dómari geti ákveðið á eigin spýtur hvaða skoðanir séu innan trúarhreyfinga og hverjar ekki.
Kristin sannfæring
Lydia á erfitt með að skilja hvers vegna dómsstóllinn tók afstöðu með skólanum í þessu máli.
-"Ég er mjög svekkt yfir því að dómsstóllinn skildi ekki leifa mér að bera hreinleikahringinn minn í skólanum sem tákn um trúarlega afstöðu mína" segir hún.
Lýdia hefur um nokkura ára skeið verið virk í samtökunum "The silver ring Thing" sem eru samtök sem styðja við bakið á unglingum sem velja að bíða með kynlífið þar til lífsförunauturinn er fundinn og búið er að innsigla samninginn!"
-"Strax fyrir um tveim árum fór ég að hafa verulegar áhyggjur af unglingum sem í auknum mæli voru að smitast af kynsjúkdómum, ungar stúlkur urðu þungaðar sem oftar en ekki endaði með fóstureyðingu".
-"Forvarnarverkefni hins opinbera í þessum efnum er ekki að skila árangri og þrístingur unglinga um að byrja að stunda kynlíf er alltaf að aukast" sagði Lydia í sjónvarpsviðtali í morgunþætti BBC, eftir að dómurinn fell skólanum í vil.
Heldur fast við sannfæringu sína
Lydia heldur áfram baráttunni um hreinleikann, sem þann veg sem Guð hafði undirbúið fyrir unglinga, og heldur fast við þann rétt að fá að útlista trúfrelsi sitt í orði og verki. Hún íhugar nú að stefna Hæstarétti Breta til Mannréttindadómstóls Evrópu, s.b.r. 9. grein sem tryggir henni tjáningar og trúfrelsi.
-"Ég krefst réttar míns til að tjá trúarskoðanir mínar, afstöðu mína til Guðs og til framtíðar eiginmanns míns með því að bera hreinleikahringinn minn" segir Lydia jafnframt á bloggsíðu sinni.
Þú getur lesið meira um þetta mál á eftirfarandi heimasíðum!
http://www.purityring.org.uk/
http://www.lydiaplayfoot.blogspot.com/
http://www.silverringthing.com/
Höfundur: Linda Helén Haukland
Þýðing: Erdna Varðardóttir
