Á tímum sem þessum
![]() |
"Á
tímum sem þessum" er fyrsta innlenda ráðstefnan sem JesúKonur á Íslandi
stóðu fyrir og var haldin dagana 26.-27. september sl. Helgin stóð svo
sannarlega undir væntingum og var stórkostlegt að sjá konur og stelpur
á öllum aldri frá mörgum mismunandi kirkjudeildum saman komnar til að lyfta upp nafni Jesú Krists. Tæplega 300 konur og stelpur voru saman komnar á föstudagskvöldinu, á annað hundrað á laugardaginn og hátt í 300 voru á lokasamverunni á laugardagskvöldið en yfirskrift lokasamkomunnar var Love Story Evening eða Ástasögukvöldið. Um 20 unglingsstelpur tóku þátt í smiðjunni fyrir stelpur á laugardaginn. |
Anne Christiansen sem stofanði Jesúkonur var aðalræðukona helgarinnar. Hún var mjög ánægð með helgina og biður að heilsa ykkur öllum sem tókuð þátt. Það er bæn hennar að við Íslenskar konur tökum stöðu okkar sem kristnar konur og förum að hafa áhrif á "heiminn okkar" til batnaðar.
Það er í okkar valdi að gera heiminn okkar að betri stað fyrir alla þá sem umgangast okkur. Það er því þrá okkar sem JesúKonur að við tökum þessa áskorun mjög alvarlega. Að við séum þær konur sem Guð vill að við séum. að við líkjumst Jesú og elskum náunga okkar. Ef við gerum það munum við sjá að hlutirnir munu breytast í kringum okkur og að heimurinn okkar verið öruggari, jákvæðari og betri staður fyrir alla. Við viljum sjá breytingu í landinu okkar á tímum sem þessum og sú breyting verður að byrja hjá okkur sem einstaklingum.
JesúKonur á Íslandi þakka ykkur fyrir frábæra helgi og hvetja ykkur til að halda áfram að vera Jesú Konur - konur sem vilja líkjast Jesú!
Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir.
Hebreabréfið 13.8

