Boðskapur til Íslensku þjóðarinnar
Áramótin 1994-1995 Ester Jacobsen
Svo segir Drottinn við þessa þjóð, sem lifir í allsnægtum og vellystingum, sem hefir notið blessunar minnar og gæða, sem ég hef látið henni í té.
"Þið hafið haft ljós mitt í þúsund ár, en þið hafið valið að ganga í myrkri.
Þið þekkið rétta veginn en viljið heldur fara ykkar eigin leiðir. Þið misnotið það sem ég hef gefið ykkur, þið sóið og lifið í markæði.
Það, sem ég hafði ætlað ykkur að deila með öðrum, þannig að blessun mín gæti runnið frá ykkur til annarra, því hafið þið eytt í ykkur sjálf. Ég, sem hef viljað vera Guð ykkar lands, eins og þið syngið, (í þjóðsöngnum), en ég hef verið settur til hliðar.
Í staðinn hafið þið dýrkað matt myrkursins og óþekkta guði sem geta ekki hjálpað ykkur. Þess vegna vil ég snúa baki við ykkur, " segir Drottinn, "eins og þið hafið gert við mig. Ég vil taka
blessun mína frá ykkur," segir Drottinn, "ég vil blása henni burt eins og reyknum frá flugeldunum sem þið skjótið upp um hver áramót. Það kemur sá dagur, þegar ég mun láta ykkur gera mér reikningsskil. Þið verðið kölluð til ábyrgðar fyrir alla eyðslusemina.
Þið hafið eignað ykkur heiðurinn af velmegnuinni og góðu árunum, og hafið ykkur upp í hroka. Þið hafið gleymt því, að þetta er mér að þakka," segir Drottinn, "það er ég sem hefi haldið verndarhendi yfir ykkur. Þið hafið notið blessunar forfeðra ykkar, þeirra, sem leituðu mín af hreinu hjarta. En þið hafið ekki gefið mér heiurinn," segir Drottinn. "Með því að brjóta andleg lögmál, þá kallið þið ógæfuna yfir ykkur með líferni ykkar. Þess vegna, vegna synda ykkar og óguðleika sem hrópar gegn mér, vegna þess, að þið brjótið stöðugt boðorð min og traðkið á því, sem heilagt er, þess vegna mun ég snúa mér frá ykkur," segir Drottinn. "Mér líður illa og velgir við fölskum guðsþjónustum ykkar, þess vegna mun ég snúa mér frá ykkur," segir Drottinn.
"Vegna þess, að þið eruð hrokafull og þrjósk þjóð, mun ég gefa ykkur á vald þeim fölsku guðum, sem þið hafið valið ykkur. Þannig getið þið á ný lært, hver það er sem er hinn eini sanni Guð, og hver það er, sem hefur varðveitt ykkur gegnum marga þrengingartíma.
En þegar þið auðmýkið ykkur og leitið mín af öllu hjarta, þá mun ég aftur láta miskunnarsól mina skína yfir þetta land," segir Drottinn, "því að ég hef áætlun og óskir með ykkur. Að þið skulið vera mín þjóð, sem lifir eftir mínu hjarta og eftir mínum lögmálum," segir Drottinn, "þannig að sú blessun sem ég veiti ykkur, bæði andleg og veraldleg, geti streymt frá ykkur til annarra þjóða sem eru í neyð.
Svo heyrið boðskap minn í dag, og auðmýkið ykkur áður en það verður of seint. Ég gef ykkur þessar aðvaranir á andlegan hátt, því ég elska ykkur og vil vera ykkar Guð," segir Drottinn allsherjar.