Sameinum kynslóðirnar

Í apríl 2009 voru JesúKonur og JesúStelpur með sameiginlega stund í Reykjavík. Það hefur verið þrá okkar lengi að reyna með markvissum hætti að brúa kynslóðabilið og hvetja eldri konur til að gefa sig meira að yngri konum og stúlkum og að sama skapi að hvetja yngri konur og stelpur til að verja meiri tíma með eldri konum.

Allar höfum við eitthvað fram að færa inn í líf hverrar annarar og það er svo margt sem við getum lært hver af annarri. Þess vegna ákváðum við að hafa þessa sameiginlegu stund.

   Erdna Varðardóttir talaði til eldri kvennanna um unglingsstúlkurnar. Hún talaði um það hversu mikilvægt það er fyrir unglingsstúlkur að hafa heilbrigðar kristnar fyrirmyndir sem þær geta litið upp til, að við sem eldri erum getum skipað okkur í skarðið og beðið fyrir unglingunum sem eru að vaxa upp í dag. Hún minntist á að rannsóknir sýna að 80% þeirra sem taka ákvörðun um að gera  Jesú að leiðtoga lífs síns gera það fyrir 18 ára aldur. Unglingar eru opnir fyrir öllu það er bara spurning um hvað er sterkasti áhrifavaldurinn í lífi þeirra.
Könnun sem var gerð í Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum sýnir að 80% kirkjubarna sem snúa baki við trúnni gera það fyrir 15 ára aldur og það séu ekki nema um 15% þeirra sem snúa til baka síðar á lífsleiðinni.
Við verðum að stöðva þessa þróun með því að leyfa unglingunum að finna það að þeir eru hluti af samfélagi okkar, að við höfum áhuga á því að unglingar hafi aðrar þarfir og áhugamál en við hin fullorðnu og að við hin eldri sköpum þeim yngri þau skilyrði að þau fái að vaxa upp sem kristnir einstaklingar í heilbrigðu umhverfi með heilbrigðar fyrirmyndir og að lífið með stóru L-i sé að fylgja Jesú.

  Alís Inga Freygarðsdóttir hvatti okkur allar til að vera virkari þáttakandendur í lífi hverrar annarar. Að við gefum okkur að þeim sem eru okkur eldri og líka þeim yngri. Hún hvatti allar konur til að hafa áhrif á líf þeirra yngri á uppbyggilegan hátt en líka að þær yngri taki hinar eldri sér til fyrirmyndar. Það er svo margt sem eldri konur geta gefið til okkar sem yngri erum. Konur sem hafa gengið með Jesú í gegnum súrt og sætt og virkilega fengið að upplifa hvernig Guð hefur haldið þeim uppi aftur og aftur í lífinu. Einnig talaði hún um það hversu mikilvægt það er að temja sér að tala og lifa í sannleika og hversu mikilvægt það er að unglingsstelpur sem eru að vaxa upp í dag hafi heilbrigða mynd á hjónabandinu.
Við þurfum allar að átta okkur á því að það er enginn annar sem mun fullkomna okkur sjálfar eða gert okkur hamingjusamar. Það er undir okkur sjálfum komið og því lífi sem við eigum í Guði hversu gott samband okkar við maka okkar verður. Þess vegna er svo mikilvægt að við lærum að bíða eftir þeim eina rétta og að við leyfum Guði að leiðbeina okkur í ástarmálunum.

  Ragnheiður Jónsdóttir (amma Erdnu) verður 92 ára síðar á þessu ári. Hún gaf vitnisburð um trúfesti Guðs við þá sem honum tilheyra. Hún sagði frá atviki sem hún fékk að reyna fyrir mörgum árum um það hvernig Heilagur Andi getur gefið fólki leiðbeiningar með mismunandi hætti til að leiða okkur í allan sannleika þegar leiðinlegir atburðir henda í lífi okkar. Einnig talaði hún um það hversu mikilvægt það er að hafa aðgöngumiðann inn í himininn og sagði frá draumi sem hana hafði dreymt þegar hún var ung kona. Aðgöngumiðann inn í himininn eignumst við bara með því að taka við því frelsisverki sem Jesús vann fyrir okkur með dauða sínum á krossinum þar sem hann tók á sig allar okkar misgjörðir.



Ræðukona dagsins var svo Helga Þórarinsdóttir en hún er einn af leiðtogunum fyrir JesúStelpur. Helga er aðeins 19 ára en er mikil fyrirmynd fyrir stelpurnar með bæði lífi sínu og framkomu. Helga prédikaði út frá Rutarbók, hvernig samband Rutar og Naomi, sem var tengdamóðir hennar, var. Hún talaði um það hvernig við getum haft áhrif á líf annarra kvenna í lífi okkar þó svo að aldursmunurinn geur verið mikill. Hún talaði líka um það hvernig móðir hennar hafi verið henni hvatnig og fyrirmynd í lífinu og bað mömmu sína að koma upp og gefa vitnisburð.

Erla Björk (móðir Helgu) gaf sinn vitnisburð um það hvernig Guð hefði fengið að mæta henni þegar allar leiðir virtust vera lokaðar í lífi hennar. Hún talaði um það hvernig hún í æsku hefði farið á mis við heilbrigða móðurímynd og hversu þakklát hún væri Guði að fá að gefa börnunum sínum það sem hún átti aldrei. Einnig talaði hún um það hvað það er mikilvægt að við sem erum foreldrar gefum börnum okkar tíma okkar og að við leitumst við að verja tíma með þeim.


Við enduðum svo stundina á því að kver kynslóð blessaði hverja aðra. Við fengum allar JesúStelpurnar til að standa í einni röð og báðum konurnar að biðja fyrir stelpunum en einn fulltrúi eldri kyslóðar, Ester Jacobsen forstöðukona í Fíladelfíu, leiddi í bæn. Að því loknu voru kynslóðaskipti. Allar stelpurnar réttu fram hendur sínar á móti konunum og Helga sem fulltrúi yngri kynslóðarinnar leiddi í bæn fyrir konunum.

Stundin var yndisleg og ég vona svo sannarlega að við megum meta kynslóðirnar betur og eins og Helga sagði að við mættum fylla upp í kynslóðabilið í stað þess að brúa það. Við þráum að sjá allar kynslóðir standa saman og hafa áhrif hver á aðra.

Mætti Drottinn hjálpa okkur til þess.


Erdna Varðardóttir
Flettingar í dag: 43
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 63
Gestir í gær: 23
Samtals flettingar: 131825
Samtals gestir: 40145
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 19:06:36