Fréttir frá Akureyri
|
Dömurnar norðanheiða hófu annan starfsvetur sinn í september 2008.
Hópur af konum fór saman á ráðstefnuna sem JesúKonur héldu í lok
september og fögnuðu svo fyrstu JesúKonu stundinni hér í október. Nærvera Heilags Anda hefur verið sterk á stundunum þar sem konurnar eru hvattar til að gefa gætur að hvorri annarri og uppörva hvor aðra. Í litlu samfélagi er gott að geta prófað sig áfram í þeim gjöfum sem við búum yfir eins og að tala Guðs Orð, koma með spádómsorð eða sinna fyrirbænaþjónustu og leiða lofgjörð. Stundirnar hafa verið fjölbreyttar, frá ljúfum en kröftugum bænastundum upp í fjölmenn námskeið! |
| Í lok þessa vetrar hittumst við í heimahúsi og grilluðum saman. Sú
stund var fámenn en mjög góðmenn og Heilagur Andi gaf djörfung,
uppörvun og einingu á þeirri stund. Allar konurnar fengu gjöf inn í
sumarið sem nú er hafið, að vera salt jarðar (matteus 5:13). Með því að vera gott salt drögum við fram það besta í náunganum og vinnum leynt og ljóst að því að bæta samfélagið okkar. |
![]() |
Drottinn blessi ykkur margfaldlega og ríkulega

