Fréttir frá Selfossi
Jesúkonur á Selfossi 2008 - 2009
Á síðastu Jesúkonustund vetrarins var ákveðið að ákveðnar konur tækju að sér að skipuleggja einn viðburð á mánuði í sumar þar sem við kæmum saman t.d. gönguferð, kaffihúsaferð eða þess háttar. Ákveðið var að halda áfram með Jesúkonusundið frá því í fyrrasumar en þá hittumst við Jesúkonur í sundlauginni á morgnanna og fórum stundum með nesti í aðrar sundlaugar.
Frá því að Jesúkonustarfið hófst á Selfossi hefur ávöxturinn helst verið sá að konur hafa tengst saman sterkum vinaböndum og grundvallast enn frekar í trúnni sem sterkar Guðskonur.
Sjá einnig fleiri myndir frá JesúKonum á Selfossi í myndaalbúmi síðunnar
![]() |
Í vetur hafa Jesúkonustundir á Selfossi verið fyrsta laugardag í
mánuði. Þá hafa konur komið saman milli kl. 10 -12 átt gott samfélag,
lofað Guð, hlustað á hugleiðingu og beðið saman. Nokkuð mikið af nýjum
konum hafa komið á fundina í vetur og nokkrar þeirra komið aftur og
aftur sem er alveg frábært. Áherslan í vetur hefur verið að virkja konunar í starfinu til að þjóna hver til annarra, við höfum hvatt þær til að stíga fram í því sem Guð hefur gefið þeim. Í vetur hafa því fjölmargar okkar þjónað á einn eða annan hátt t.d. með því að predika, syngja eða vera virkar í fyrirbænaþjónustu. |
![]() |
Í september og febrúar voru Jesúkonuhelgar þar sem farið var út út bænum í Húsið í Fljótshlíðinn frá föstudagskvöld til sunnudags. Þátttaka var góð og margt gott sem Guð vann í lífum kvenna. Ákveðið var á vordögum að breyta fundarfyrirkomulaginu eitt skiptið og bauð ein Jesúkona öllum heim til sín í mat og hugguleg heit, það heppnaðist mjög vel. |