Að finna lífsförunaut sinn
Útdráttur úr grein í kristilega tímaritinu Helande Löv frá Arken í Svíþjóð
Þær eru:
1. Hver er ég?
2. Hver er verðandi maki minn?
3. Hvernig finnum við hvort annað?
Hver er ég?
Fyrsta skrefið er að þú áttir þig á hver þú ert og hvaða gjafir þú hefur. Lífið hefur upp á margt að bjóða fyrir þann sem vill njóta lífsins og þeirra áskorana sem Guð hefur fyrir hann. Geri maður sér ekki grein fyrir því getur væntanlegt samband orðið harla fátæklegt. Hafir þú ekki fundið þér lífsförunaut getur þú valið á milli tveggja kosta: Annað hvort verður markmið lífs þíns að finna maka eða þú ákveður að að fylla lífið af spennandi og gefandi hlutum meðan á leitinni stendur. (Matt. 6:33)
Spurningin um það hver þú ert snýst ekki síst um það með hverju þú fyllir líf þitt. Gættu þess að líf þitt sé innihaldsríkt og leitastu eftir að komast inn í áætlun Guðs með líf þitt. Ræktaðu áhugamál þín og gjafir. Markmið lífsins á ekki að vera að ganga í hjónaband. Þrengdu þér nær Guði því einstaklingur sem er einlægur, trúfastur, sjálfsöruggur og veit hvert hann stefnir er mjög aðlaðandi!
Sorglegt líf
Oft finnst unglingum sem lífið hljóti að verða tilbreytingarlítið eftir að í hjónaband er komið. Samt sem áður eru þeir spenntir fyrir hinu kyninu og vilja gjarnan eiga kærustu eða kærasta. Það er eins og margir telji að lífið taki enda þegar hjónabandið hefst og eftir það snúist allt um að eignast börn, hús, sumarbústað og flottan bíl. Unglingur sem þráir að þjóna Guði álítur ef til vill að maki og fjölskyldulíf passi ekki inn í þá mynd. Það sem skiptir máli er vitaskuld að finna maka sem einnig lifir innihaldsríku lífi, vill þjóna Guði og stefnir að sömu markmiðum með lífi sínu.
Skuggar sem geta haft áhrif á þig
Það kann að vera ýmislegt úr fortíð þinni sem snertir þessa mikilvægu spurningu: "Hver er ég?" Þetta getur fjötrað þig með ýmsu móti og komið í veg fyrir að þú getir gefist tilvonandi maka af heilum hug. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir og vinna úr slíkum málum. Hugsanlega átt þú önnur sambönd að baki - sambönd sem þú hefur ekki unnið úr og varpa því skugga yfir líf þitt. Þú þarft að leyfa Guði að lækna þau sár sem hafa myndast. (Mark. 10:29)
Það getur líka verið að þú þurfir að losna frá foreldrum þínum. (1. Mós. 2:24, Matt. 19:5) Erfið reynsla úr barnæsku getur haft margs konar áhrif þegar kemur fram á fullorðinsár. Þetta geta verið neikvæð samskipti foreldra þinna, stöðugt rifrildi eða skilnaður þar sem þú sem barn lentir á milli. Ef til vill varst þú yfirgefinn af föður þínum eða móðir þín fann sér nýjan mann. Varðst þú fyrir einelti í skólanum, fékkstu aldrei að vera með jafnöldrum þínum í leikjum eða varstu lítillækkaður vegna þess hver þú varst?
Lækning sálarinnar
Vitaskuld eru ákveðin svið í lífi þínu þar sem þú hefur verið særður en Guð vill komast þar inn og lækna þig. Það er mjög nauðsynlegt að slík lækning eigi sér stað áður en gengið er inn í nýtt samband. (1. Pét. 2:25)
Hins vegar er "hinn fullkomni maki" ekki til og allir hafa eitthvað í lífi sínu sem þeir hafa ekki tekist á við. Ef til vill hafa þeir ekki viljað horfast í augu við það af því að einhver hefur haft skoðun á því. Spurningin er hins vegar hvaða skoðun hefur þú á þessu? Hvaða augum lítur þú á sjálfan þig? (Ljóðalj. 2:10, 2. Sam. 22:33, Jóel 3:10)
Við erum öll ólík. Það er betra að vera maður sjálfur en að týnast í fjöldanum og vera eins og allir aðrir. Þú þarft að hafa rétta sjálfsmynd því þú ert einstök sköpun Guðs. (Sálm. 139:14)
Fylltu líf þitt
Regla númer eitt er að líf þitt sé innihaldsríkt. (Lúk. 10:27) Þú þarft fyrst að læra að elska sjálfan þig. (Mark. 12:31, Gal. 5:14) Þú ert einstakur og þarft engan þér við hlið til að verða hamingjusamur. (Jer. 29: 11-13) Hins vegar er löngunin til að deila lífinu með einhverjum gefin af Guði og hún er eitthvað sem við ættum alls ekki að hunsa. (1. Mós. 1:28, 1. Mós. 2:24)
Leyfðu Guði því að vinna á þeim sviðum í lífi þínu sem þarf að lækna. Ef hann segir þér að bíða skaltu treysta honum.
Hver er verðandi maki minn?
Köllun þín
Þú þarft enn fremur að vera viss um að viðkomandi stefni að því sama og þú í lífinu. Vertu búinn að ganga úr skugga um trúarafstöðu þess sem þér líkar við. Ef þú finnur að honum líkar ekki að þú setur Guð í fyrsta sæti í lífi þínu skaltu bakka út. Enginn hefur rétt til að ráðskast með þig eða stjórna þér. Þess í stað eigið þið að virða hvort annað og taka sameiginlegar ákvarðanir.
Velþóknun Guðs
Fljótlega muntu komast að því hvort samband ykkar er Guði velþóknanlegt eða ekki. Spyrðu þig að því hvort ástarsambandið færir þig nær eða fjær Guði og hvor hefur forgang - kærastinn/kærastan eða Guð. Löngunin í brúðkaup getur nefnilega blindað fólk gjörsamlega svo almenn skynsemi fýkur út í veður og vind. Taktu þér góðan tíma til að hugsa þig um hvort þetta sé virkilega það sem þú vilt.
Spyrðu vinina
Það er skynsamlegt að hlusta á vini sína þar sem fólk er ekki alltaf skynsamt í tilhugalífinu. Biddu vini þína að svara heiðarlega hvað þeim finnst um sambandið. Þú gætir jafnvel spurt andlegan leiðtoga sem þú treystir og sem þekkir til. Þeir sem standa þér næst sjá hvort sambandið er gott og einkennist af virðingu, trausti og einlægni.
Trúlofun
Ákvörðun um trúlofun á að byggjast á að þið þekkist orðið það vel að þið viljið taka næsta skref til að nálgast hvort annað. Ekki er hægt að tilgreina hámarks eða lágmarks trúlofunartíma en stundum er talað um eitt ár sem viðmið.
Þó búið sé að setja upp hringana er ekki skynsamlegt að hefja kynferðislegt samband. Margt getur farið úrskeiðis þó svo þið hafið tekið þetta skref. Samlíf tilheyrir hjónabandinu. Ef þú gerir þér grein fyrir að viðkomandi sé ekki réttur maki fyrir þig skaltu slíta trúlofuninni áður en lengra er haldið. Það er ekki merki um veikleika.
Hvernig finnum við hvort annað?
Það að þú skulir vera einhleypur þýðir ekki að eitthvað sé að þér. Þú getur fundið þann sem hentar þér. Eini munurinn á þér og giftum vini þínum er að þú hefur ekki enn hitt lífsförunaut þinn.
Eitthvað betra
Nokkur hagnýt ráð!
Hvað getur hindrað þig í að finna maka?
Höfundur: Bengt Dahlberg
Þýðandi: Erdna Varðardóttir
|
Ertu einhleypur/einhleyp og þráir að deila lífi þínu með einhverjum? Hvaða ráð er hægt að gefa einstaklingi sem vill ekki lengur vera einhleypur? Það er hægt að segja honum að njóta lífsins sem einhleypur eins lengi og hægt er! Þetta er sennilega ekki sú leiðsögn sem sá sem þráir lífsförunaut vill heyra. Það er einnig hægt að ráðleggja fólki að velja sér maka af kostgæfni en það svarar heldur ekki spurningunni um hvernig skuli finna þann aðila. Þessar vangaveltur eru þó góður grunnur til að byrja á. Það má segja að það séu þrjár spurningar sem fólk þarf að spyrja sig áður en lengra er haldið inn í samband. |
1. Hver er ég?
2. Hver er verðandi maki minn?
3. Hvernig finnum við hvort annað?
Hver er ég?
Fyrsta skrefið er að þú áttir þig á hver þú ert og hvaða gjafir þú hefur. Lífið hefur upp á margt að bjóða fyrir þann sem vill njóta lífsins og þeirra áskorana sem Guð hefur fyrir hann. Geri maður sér ekki grein fyrir því getur væntanlegt samband orðið harla fátæklegt. Hafir þú ekki fundið þér lífsförunaut getur þú valið á milli tveggja kosta: Annað hvort verður markmið lífs þíns að finna maka eða þú ákveður að að fylla lífið af spennandi og gefandi hlutum meðan á leitinni stendur. (Matt. 6:33)
Spurningin um það hver þú ert snýst ekki síst um það með hverju þú fyllir líf þitt. Gættu þess að líf þitt sé innihaldsríkt og leitastu eftir að komast inn í áætlun Guðs með líf þitt. Ræktaðu áhugamál þín og gjafir. Markmið lífsins á ekki að vera að ganga í hjónaband. Þrengdu þér nær Guði því einstaklingur sem er einlægur, trúfastur, sjálfsöruggur og veit hvert hann stefnir er mjög aðlaðandi!
Sorglegt líf
Oft finnst unglingum sem lífið hljóti að verða tilbreytingarlítið eftir að í hjónaband er komið. Samt sem áður eru þeir spenntir fyrir hinu kyninu og vilja gjarnan eiga kærustu eða kærasta. Það er eins og margir telji að lífið taki enda þegar hjónabandið hefst og eftir það snúist allt um að eignast börn, hús, sumarbústað og flottan bíl. Unglingur sem þráir að þjóna Guði álítur ef til vill að maki og fjölskyldulíf passi ekki inn í þá mynd. Það sem skiptir máli er vitaskuld að finna maka sem einnig lifir innihaldsríku lífi, vill þjóna Guði og stefnir að sömu markmiðum með lífi sínu.
Skuggar sem geta haft áhrif á þig
Það kann að vera ýmislegt úr fortíð þinni sem snertir þessa mikilvægu spurningu: "Hver er ég?" Þetta getur fjötrað þig með ýmsu móti og komið í veg fyrir að þú getir gefist tilvonandi maka af heilum hug. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir og vinna úr slíkum málum. Hugsanlega átt þú önnur sambönd að baki - sambönd sem þú hefur ekki unnið úr og varpa því skugga yfir líf þitt. Þú þarft að leyfa Guði að lækna þau sár sem hafa myndast. (Mark. 10:29)
Það getur líka verið að þú þurfir að losna frá foreldrum þínum. (1. Mós. 2:24, Matt. 19:5) Erfið reynsla úr barnæsku getur haft margs konar áhrif þegar kemur fram á fullorðinsár. Þetta geta verið neikvæð samskipti foreldra þinna, stöðugt rifrildi eða skilnaður þar sem þú sem barn lentir á milli. Ef til vill varst þú yfirgefinn af föður þínum eða móðir þín fann sér nýjan mann. Varðst þú fyrir einelti í skólanum, fékkstu aldrei að vera með jafnöldrum þínum í leikjum eða varstu lítillækkaður vegna þess hver þú varst?
Lækning sálarinnar
Vitaskuld eru ákveðin svið í lífi þínu þar sem þú hefur verið særður en Guð vill komast þar inn og lækna þig. Það er mjög nauðsynlegt að slík lækning eigi sér stað áður en gengið er inn í nýtt samband. (1. Pét. 2:25)
Hins vegar er "hinn fullkomni maki" ekki til og allir hafa eitthvað í lífi sínu sem þeir hafa ekki tekist á við. Ef til vill hafa þeir ekki viljað horfast í augu við það af því að einhver hefur haft skoðun á því. Spurningin er hins vegar hvaða skoðun hefur þú á þessu? Hvaða augum lítur þú á sjálfan þig? (Ljóðalj. 2:10, 2. Sam. 22:33, Jóel 3:10)
Við erum öll ólík. Það er betra að vera maður sjálfur en að týnast í fjöldanum og vera eins og allir aðrir. Þú þarft að hafa rétta sjálfsmynd því þú ert einstök sköpun Guðs. (Sálm. 139:14)
Fylltu líf þitt
Regla númer eitt er að líf þitt sé innihaldsríkt. (Lúk. 10:27) Þú þarft fyrst að læra að elska sjálfan þig. (Mark. 12:31, Gal. 5:14) Þú ert einstakur og þarft engan þér við hlið til að verða hamingjusamur. (Jer. 29: 11-13) Hins vegar er löngunin til að deila lífinu með einhverjum gefin af Guði og hún er eitthvað sem við ættum alls ekki að hunsa. (1. Mós. 1:28, 1. Mós. 2:24)
Leyfðu Guði því að vinna á þeim sviðum í lífi þínu sem þarf að lækna. Ef hann segir þér að bíða skaltu treysta honum.
Hver er verðandi maki minn?
|
Ef þú veist ekkert um þann sem þú ert hrifinn af getur margt farið úrskeiðis. Góð leið til að kynnast viðkomandi er að gera eitthvað saman og í hópi með öðrum vinum. Með því að umgangast hvort annað og spjalla saman komist þið að ýmsu varðandi hvort annað. Mundu bara að segja satt og rétt frá lífi þínu, löngunum þínum og draumum um framtíðina. Það er einnig góð leið að umgangast vini þess aðila sem þér líst vel á því vinirnir gefa oftast rétta mynd af því hvaða mann hann eða hún hefur að geyma. Einnig getur verið sniðugt að prófa skoðanir og viðbrögð viðkomandi. Þegar þið skiptist á skoðunum kemstu líka að því hvernig hinn aðilinn bregst við mótstöðu og vinnur úr ágreiningi. |
Köllun þín
Þú þarft enn fremur að vera viss um að viðkomandi stefni að því sama og þú í lífinu. Vertu búinn að ganga úr skugga um trúarafstöðu þess sem þér líkar við. Ef þú finnur að honum líkar ekki að þú setur Guð í fyrsta sæti í lífi þínu skaltu bakka út. Enginn hefur rétt til að ráðskast með þig eða stjórna þér. Þess í stað eigið þið að virða hvort annað og taka sameiginlegar ákvarðanir.
Velþóknun Guðs
Fljótlega muntu komast að því hvort samband ykkar er Guði velþóknanlegt eða ekki. Spyrðu þig að því hvort ástarsambandið færir þig nær eða fjær Guði og hvor hefur forgang - kærastinn/kærastan eða Guð. Löngunin í brúðkaup getur nefnilega blindað fólk gjörsamlega svo almenn skynsemi fýkur út í veður og vind. Taktu þér góðan tíma til að hugsa þig um hvort þetta sé virkilega það sem þú vilt.
Spyrðu vinina
Það er skynsamlegt að hlusta á vini sína þar sem fólk er ekki alltaf skynsamt í tilhugalífinu. Biddu vini þína að svara heiðarlega hvað þeim finnst um sambandið. Þú gætir jafnvel spurt andlegan leiðtoga sem þú treystir og sem þekkir til. Þeir sem standa þér næst sjá hvort sambandið er gott og einkennist af virðingu, trausti og einlægni.
Trúlofun
Ákvörðun um trúlofun á að byggjast á að þið þekkist orðið það vel að þið viljið taka næsta skref til að nálgast hvort annað. Ekki er hægt að tilgreina hámarks eða lágmarks trúlofunartíma en stundum er talað um eitt ár sem viðmið.
Þó búið sé að setja upp hringana er ekki skynsamlegt að hefja kynferðislegt samband. Margt getur farið úrskeiðis þó svo þið hafið tekið þetta skref. Samlíf tilheyrir hjónabandinu. Ef þú gerir þér grein fyrir að viðkomandi sé ekki réttur maki fyrir þig skaltu slíta trúlofuninni áður en lengra er haldið. Það er ekki merki um veikleika.
Hvernig finnum við hvort annað?
Það að þú skulir vera einhleypur þýðir ekki að eitthvað sé að þér. Þú getur fundið þann sem hentar þér. Eini munurinn á þér og giftum vini þínum er að þú hefur ekki enn hitt lífsförunaut þinn.
Eitthvað betra
|
Að finna tilvonandi maka er ekki eins og að leita að nál í heystakki.
Það eru margir sem geta verið hinn eini rétti fyrir þig. Sumt fólk er
svo andlegt að það þarf að heyra Guð tala áður en það getur gengið inn
í samband. Ég trúi því hins vegar að Guð þurfi að fá að vera með frá
byrjun í öllum samböndum. Við þurfum líka að vera vakandi fyrir því ef
Guð vill vara okkur við einhverju. En sá sem þú elskar og elskar þig mun hins vegar vera sá eini rétti þegar þið hafið fundið hvort annað. Eitt getur þú verið viss um; ef samband þitt leiðir ekki til ævilangs sambands þá hefur Guð eitthvað betra fyrir þig. Hann mun ekki gefa þér þann næstbesta. Þá sagði faðir hans við þjóna sína: Komið fljótt með hina bestu skikkju og færið hann í, dragið hring á hönd hans og skó á fætur honum. Lúk. 15:22 |
Nokkur hagnýt ráð!
- Leitaðu að lífsförunauti þar sem þú þjónar Guði því þangað koma þeir sem vilja þjóna Guði á sama hátt.
- Farðu á staði þar sem þér líður vel til að hitta annað fólk,
- Vertu opinn og myndaðu vináttutengsl.
- Vertu óhræddur við að líta í kringum þig í nánasta umhverfi þínu.
- Stundum eru skipulagðar uppákomur fyrir einhleypa en það er líka hægt að finna lífsförunaut í vinahópnum sínum. Ekki halda að þú þurfir að fara jörðina á enda til að finna hinn eina rétta.
- Sá sem þú hittir í stutta stund fjarri heimahögum getur virst vera mjög áhugaverður ...
- En ef þið kynnist á ferðalagi skuluð þið ekki verða par fyrr en þið eruð búin að kynnast.
- Ef þið búið langt frá hvort öðru haldið þá áfram að vera vinir. Láttu ekki þrá þína eftir lífsförunauti stjórna lífi þínu. Fjarsambönd endast sjaldan lengi. Talaðu um þetta við hinn aðilann. Guð þekkir hjartað og hann mun einnig finna lausn ef þetta er réttur aðili fyrir þig.
- Notaðu ekki samskiptasíður til þess að leita þér að maka heldur miklu frekar til að kynnast nýjum vinum. Það er á meðal vina þinna sem líklegast er að þú finnir þér lífsförunaut og þið þurfið fyrst og fremst að vera góðir vinir.
Hvað getur hindrað þig í að finna maka?
- Þú gerir of miklar kröfur um hver lífsförunautur þinn á að vera. Þetta getur til dæmis tengst því hvernig viðkomandi á að líta út eða haga sér. Guð sér hvað þú þráir og heiðrar það. Þegar Guð sendir einhvern í veg þinn getur verið að þú áttir þig ekki á að þarna er manneskjan sem þú hefur verið að biðja um vegna þess að kröfur þínar blinda þig.
- Þú hefur of sterk tengsl við fjölskyldu þína, ættingja og foreldra.
- Guð gæti þurft að lækna þig á einhverju sviði lífs þíns. Ef til vill áttu slæmar minningar sem valda því að þú þorir ekki að tengjast öðrum nánum tilfinningaböndum. Hræðslan við að verða fyrir höfnun eða særindum getur hindrað þig í að lifa lífinu.
- Þú þorir ekki að láta í ljós að þú sért hrifinn eða hafir áhuga.
- Þú ert of fljótur á þér að sætta þig við neitun eða gefur hinum aðilanum of stuttan tíma til að hleypa þér inn í líf sitt.
- Löngun þín eftir að hitta einhvern er of mikil. Markmið lífs þíns á ekki að vera að ganga í hjónaband. Þrengdu þér nær Guði því einstaklingur sem er einlægur, trúfastur og veit hvert hann stefnir er mjög aðlaðandi!
- Elskaðu sjálfan þig
- Vertu hvetjandi. Uppörvaðu hinn, jafnvel þótt þú sjáir að hann hafi bresti - þannig verður þú gefandi manneskja.
- Hugsaðu um útlitið Láttu þér annt um hvernig þú lítur út, gættu að klæðaburði og hreinlæti. Þótt okkar innri maður sé það sem máli skiptir er það nú einu sinni svo að útlit okkar er það fyrsta sem aðrir taka eftir.
- Leyfðu Guði að lækna þig af særindum og vonbrigðum
- Trúðu því að þú sért sá sem einhver annar þarf á að halda.
- Vertu alveg frjáls frá fyrri ástarsamböndum og slíttu óeðlileg tengsl við foreldra ef þörf er á.
- Leyfðu öðrum að hafa frumkvæði
- Ef einhver hefur frumkvæði og vill kynnast þér skaltu ekki segja nei fyrr en þú hefur kynnst hinum aðeins betur.
- Gefðu skýrt til kynna að þú viljir ekki ana út í ástarsamband strax.
- Ef þú ert í sambandi skuluð þið eiga mikil samskipti: Talið saman, skrifist á og umgangist hvort annað Skrifið hvort öðru bréf - þó þið hittist daglega. Ræðið síðan um það sem þið skrifið.
- Verið ekki í hlutverki sálusorgara gagnvart hvort öðru - byggið upp heilbrigt vináttusamband ykkar á milli.
- Láttu hinn aðilann í sambandinuvera mikilvægari en þú sjálfur.
- Spyrðu spurninga og sýndu honum áhuga. Ef þú verður fyrir vonbrigðum með eitthvað sem hann gerir eða segir skaltu reyna að gera ekki meira úr því en efni standa til. Sýndu viðkomandi að hann eða hún sé mikilvægari en þetta sem kom þér í uppnám.
- Vertu ekki einstaklingur sem aðeins er upptekinn af sjálfum sér, sínum hugðarefnum og útliti. Leyfðu hinum að finna að hann sé mikilvægur og áhugaverður.
- Þið hafið bæði þörf fyrir viðurkenningu, líka sá sem átti frumkvæði að sambandinu.
- Þegar þið eruð orðin örugg hvort með annað getið getið þið farið að ræða um það sem er ólíkt með ykkur en látið það ekki vera það fyrsta sem þið gerið.
- Umhyggja og tillitssemi er alltaf mikill kostur í öllum samböndum.
Höfundur: Bengt Dahlberg
Þýðandi: Erdna Varðardóttir
Flettingar í dag: 66
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 212
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 70949
Samtals gestir: 19017
Tölur uppfærðar: 5.9.2010 15:09:15
