Fréttir frá strarfinu

Mæður Í Bæn

Eins og þið flestar vitið eru starfandi Mæður í bæn bænahópar á Íslandi og víða erlendis.  Á Íslandi erum við komnar með fjóra starfandi bænahópa sem eru staðsettir í Norðlingaholti (Reykjavík), Mosfellsbæ, Hafnarfirði og á Akureyri. 

Mæður í bæn er hópur af konum sem biðja saman vikulega fyrir börnum sínum, kennurum þeirra, skólum þeirra, félögum og fleiru sem við kemur börnunum okkar.  Það er yndislegt að hittast vikulega og fela Guði öll þessi málefni sem liggja á hjarta okkar varðandi börnin.  Lesa meira

Kick off dagur inn í komandi vetur

  JesúKonur áttu saman yndislegan dag laugardaginn 10. september. Fókusinn var settur á veturinn og það sem Guð vill gera í lífi okkar. Hvatning dagsins var tekin úr Sálmi 96:3 Segið frá dýrð hans meðal þjóðanna, frá dásemdarverkum hans meðal allra lýða.

Ruth Guðmundsdóttir var með gott innlegg um orðin okkar. Sandra Rebekka sagði frá starfinu á Akureyri og hvað er að gerast þar. 


Við fengum góða kynningu á Mæður í Bæn og heyrðum vitnisburði frá Akureyri, Hafnafirði og Reykjavík hvernig Guð hefur mætt á áþreifanlegan hátt inn í erfiðar kringumstæður og gert algert undur.

JesúStelpur voru með samverustund fyrir 12-17 ára
stelpur og áttu þær mjög skemmtilega stund saman. Erdna Varðardóttir talaði svo til okkar á laugardagskvöldið um að vera vinur Guðs.    
Sjáið myndirnar í myndaalbúmi síðunnar.


JesúKonur á Selfossi hætta starfsemi.

JesúKonur á Selfossi hafa ákveðið að hætta starfsemi að svo stöddu. JesúKonur hafa verið með mánaðarlegar samverustundir í Hvítasunnukirkjunni á Selfossi í 4 ár og hafa margar konur sótt samverurnar á þeim tíma.
    Gunnhildur Stella Pálmarsdóttir og Dagbjört Eiríksdótir hafa farið fyrir JesúKonum frá upphafi. Þær eru samt langt frá því að vera hættar að þjóna Guði því þær þjóna í margvíslegu starfi innan Hvítasunnukirkjunnar á Selfossi þar sem Gunnhildur veitir kirkjunni forstöðu ásamt eiginmanni sínum.

Við biðjum þeim Guðs blessunar í starfi sínu áframhaldandi og þökkum þeim kærlega fyrir þjónustuna með JesúKonum á Íslandi.


JesúKonur á Kotmóti 2011

   JesúKonur sáu um eina samkomu á Kotmótii 2011.

Við heyrðum hvað Guð er að gera á Akureyri í vitnisburði Jóhönnu Sólrúnu. Hún sagði einnig frá ferð sem hún fór í til Kongó fyrr á þessu ári en þar fékk hún tækifæri til að hjálpa til á heimili fyrir stúlkur sem eru fórnarlömb borgarastyrjaldarinnar í Kongó. Jóhanna sagði einnig frá því hvernig hún komst yfir Biblíur til að gefa inn íkristilegt  kvennastarf í Goma.
Kristrún Brynja, annar tveggja leiðtoga fyrir JesúStelpur, sagði frá stelpustarfinu ásamt því að segja frá persónulegri reynslu
sinni sem kristin ung stelpa.

Erdna Varðardóttir talaði svo til okkar í lokinn um von.


JesúKonur gefa fátækum ekkjum í Bangladesh


Haustið 2008 stofnuðu JesúKonur sjóðinn Konur hjálpa konum. Verkefnið var til að styrkja fátækar konur í þróunarlöndum. Hægt er að lesa meira um verkefnið undir liðnum Konur hjálpa konum á heimasíðunni okkar.

Lesa meira

Merktar vörur til sölu!

Hettupeysur fyrir JesúStelpur

JesúStelpur hafa látið merkja hettupeysur með lógói sínu. Í boði eru svartar eða ljósgráar renndar hettupeysur með bleikri áletrun. Peysurnar eru í öllum stærðum. Verð 6500 kr.

Hettupeysur fyrir JesúKonur

JesúKonur hafa látið merkja renndar hettupeysur með lógói sínu aftan á
Peysurnar eru til í Versluninni Jötu í FíladelfíuJesúKonur hafa látið merkja renndar hettupeysur með lógói sínu aftan á bakinu. Um er að ræða svartar peysur með hvítri áletrun. Peysurnar eru úr 70%pómul og 30% polyester. Þær halda sér mjög vel og hnökra ekkert. Hægt er að fá peysurnar í stærðum 36-48. Verð 8500 kr.

Peysurnar eru til í Versluninni Jötu í Fíladelfíu
Pantanir eða nánari upplýsingar um söluvörur er að fá á jesukonur@jesukonur.is
 

Saman erum við sterkari - kvennasráðstefna í samstarfi við Aglow

Um 200 konur voru saman komnar helgin 24. - 25. september sl. á sameiginlegri ráðstefnu hjá JesúKonum og Aglow.
Yfirskriftin "Saman erum við sterkari" átti svo sannarlega við um þessa helgi og var yndislegt að sjá eininguna meðal kvennanna.

lesa meira

Sjáið myndirnar af ráðstefnunni á myndaalbúmi síðunnar


JesúKonur fóru á kvennamót til Noregs

 
Dagana 27.-30. maí sl. fóru nokkrar konur saman á kvennaráðstefnu JesúKvenna í Noregi. Aðalræðukona helgarinnar var hin Bandaríska Lisa Bevere. Mótið var haldið rétt fyrir utan Osló í húsnæði OKS (Oslo Kristne Senter) og voru u.þ.b. 1200 konur á mótinu.
Helgin var yndisleg og uppörvandi. Lisa Bevere var hvetjandi og talaði af krafti til Norrænu kvennanna, því konur frá Færeyjum, Svíþjóð og Danmörku voru einnig á staðnum. 

Hún hvatti konur til að vera þær konur sem Guð hafði ætlað okkur að vera og stíga fram til þeirra verka sem hann hefur kallað okkur til, einnar og sérhverrrar.

Lisa Bevere deildi sínum persónulega vitnisburði hvernig Guð hefði læknað af átröskun og leyst hana undan  slæmri sjálfsmynd.
 Hún stafar nú ásamt eiginmanni sínum, John Bevere, sem leiddi hana til trúar á fyrsta stefnumótinu þeirra. Saman ferðast þau víða um heim og prédika fagnaðarerindið um Jesú Krist.    Lesa meira um Lisu Bevere.

 
Fleiri myndir frá ferðinni eru í myndaalbúmi síðunnar

Alþjóðlegur bænadagur fyrir næstu kynslóð

Laugardaginn 14. nóember var alþjóðlegur bænadagur fyrir næstu kyndlóð. Víða um heim voru hundruð þúsunda kvenna að biðja fyrir börnunum og fyrir næstu kynslóð þennan dag.

JesúKonur fléttuðu bænadaginn inn í sína mánaðarlegu samverustund í Reykjavík. Stundin var yndisleg og var tekinn tími fyrir bænina í lok stundarinnar. Við fengum að heyra vitnisburði kvenna sem gátu staðfest að fyrirbæn skiptir skpöum fyri rlíf okkar.


Fréttir frá JesúKonum á Selfossi

Lesa meira
Jesúkonustundir á Selfossi hafa verið fyrsta laugardag í mánuði. Þá hafa konur komið saman milli kl. 10 -12 átt gott samfélag, lofað Guð, hlustað á hugleiðingu og beðið saman. Nokkuð mikið af nýjum konum hafa komið á fundina í vetur og nokkrar þeirra komið aftur og aftur sem er alveg frábært.

Fréttir frá JesúKonum á Akureyri

Dömurnar norðanheiða hófu annan starfsvetur sinn í september 2008. Hópur af konum fór saman á ráðstefnuna sem JesúKonur héldu í lok september og fögnuðu svo fyrstu JesúKonu stundinni hér í október.
Sjá einnig nýjar myndir frá Akureyri í myndaalbúmi síðunnar

Sjáðu myndir frá starfinu á Akureyri í myndaalbúmi síðunnar

Lesa meira...
 


Sameinum kynslóðirnar
  Í apríl voru JesúKonur og JesúStelpur með sameiginlega stund í Reykjavík. Það hefur verið þrá okkar lengi að reyna með markvissum hætti að brúa kynslóðabilið og hvetja eldri konur til að gefa sig meira að yngri konum og stúlkum og að sama skapi að hvetja yngri konur og stelpur til að verja meiri tíma með eldri konum.

Allar höfum við eitthvað fram að færa inn í líf hverrar annarar og það er svo margt sem við getum lært hver af annarri. Þess vegna ákváðum við að hafa þessa sameiginlegu stund 


Kítku á myndirnar frá stundinni í myndaalbúmi síðunnar

Lesa meira...

JesúKonur og karlar sameinuðust..

Á haustmóti Fíladelfíu sem haldið var  7-9 nóvember sl. opnuðu Jesúkonur sína hefðbundnu samverustund fyrir karlmönnum. Þetta er í fyrsta sinn sem það hefur verið gert hér á landi. Sundin var yndisleg og prédikaði Dennis Greenidge frábært orð, en hann var aðalræðumaður haustmótsins.

Mjög margir voru á samverustundinni bæði ungir og aldnir. Allir virtust njóta þessarar stundar og voru karlarnir hæstánægðir. Nú skorum við á karlana að fara af stað með samverustundir fyrir menn!

Sjá myndir af samverustundinni í myndaalbúmi síðunnar.
 
 


Á tímum sem þessum - fyrsta innlenda JesúKonu ráðstefnan á Íslandi

"Á tímum sem þessum" er fyrsta innlenda ráðstefnan sem JesúKonur á Íslandi stóðu fyrir og var haldin dagana 26.-27. september sl. Helgin stóð svo sannarlega undir væntingum og var stórkostlegt að sjá konur og stelpur á öllum aldri frá mörgum mismunandi kirkjudeildum saman komnar til að lyfta upp nafni Jesú Krists.

Tæplega 300 konur og stelpur voru saman komnar á föstudagskvöldinu, á annað hundrað á laugardaginn og hátt í 300 voru á lokasamverunni á laugardagskvöldið en yfirskrift lokasamkomunnar var Love Story Evening eða Ástasögukvöldið. Um 20 unglingsstelpur tóku þátt í smiðjunni fyrir stelpur á laugardaginn.

Lesa meira



Just Give Me Jesus
Tæplega 90 Íslenskar JesúKonur fóru til Osló á ráðstefnu!

Helgina 11. - 14. Maí 2007 stóðu JesúKonur á Íslandi fyrir hópferð til Osló. Stefnan var sett á ráðstefnu sem  norsku JesúKonurnar stóðu fyrir og bar yfirskriftina "Just Give me Jesus" Aðalræðukonan Anne Graham Lotz, dóttir Billy Graham.

Alls fóru 87 íslenskar konur í ferðina, frá 10 stöðum á landinu. Mikil spenna og eftirvænting var í hópnum þegar lagt var af stað fyrir því sem við vorum um það bil að fara að upplifa. Mikið hafði verið beðið fyrir ferðinni að Guð mætti mæta hverri einustu konu á persónulegan hátt
Lesa meira



Kyfnerðislegur hreinleiki leysir þig
Viðtal við söngkonuna Rebeccu St. James
  Áætlun Guðs fyrir okkur inniheldur ekki kynlíf utan hjónabands segir sönggonan Rebecca St. James. Bókin hennar "Bídddur eftir mér" kom út árið 2006 og seldist í 9000 eintökum.

"Ég finn fyrir virðingu í minn garð vegna afstöðu minnar" segir Rebecca St. James sem átti eiginlega von á meiri fordómum og gagnrýni vegna afstöðu sinnar um að bíða með kynlíf fram að hjónabandi.


Lesa meira


Rekin úr skóla fyrir að vilja vera hrein mey!
Hin 17 ára gamla Lydia Playfoot frá West Sussex á Englandi á mjög sérstaka sögu. Hún var meðal aðal gesta á stelpuráðstefnunni í Osló í september sl. en JesúKonur í Noregi héldu þá sína árlegu ráðstefnu sem að þessu sinni var tileinkuð unglingsstelpum.

Lesa meira
Flettingar í dag: 43
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 63
Gestir í gær: 23
Samtals flettingar: 131825
Samtals gestir: 40145
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 19:06:36