Ekkjurnar í Bangladesh
![]() Albert ásamt eiginkonu sinni
|
Albert er forstöðumaður og framkvæmdarstjóri Hvítasunnuhreifingarinnar í Bangladesh. Ásamt því að leiða söfnuð í höfuðborginni Dhaka og ferðast um og halda samkomur, reynir hann eins og hægt er að hjálpa fólki að lifa af. |
| Fátæktin er mikil í Bangladesh og fólk þarf virkilega að hafa fyrir
hlutunum bara til að geta lifað af. Árlega missir stór hluti
þjóðarinnar aleigu sína í flóðum, en þegar regntíminn er búinn hefst
fólk handa við að byggja upp. Baráttan við að lifa af dregur þetta
harðduglega fólk til að vinna og afla sér matar. Meðalaldurinn í
landinu er um 23,3 ár. Sjúkdómar og veikindi eru algengir því fólk
hefur einfaldlega ekki efni á því að leita sér læknisaðstoðar sem
verður til þess að margir deyja. Mest allt drykkjarvatn er mengað enda er sami pollurinn notaður sem sundlaug, þvottavatn og drykkjarvatn og ef til vill baða endurnar sig í því líka. |
Venjulegt heimili
|
![]() Vatns pumpa
|
![]() Ker undir vatnið
|
Kona við uppþvott
|
Eldhúsið. Hér er verið að sjóða vatn til matargerðar
|
![]() Salerni fyrir allt þorpið
|
![]() Fátæk kona
|
Maður skildi ætla að fjölskyldan stæði saman við þessar aðstæður en það er ekki endilega svo. Ekkjur í Bangladesh eru ekki hátt skrifaðar. Í flestum tilfellum hafa ekkjurnar lagt líf sitt að veði til að sjá börnum sínum og jafnvel barnabörnum fyrir þeim nauðsynjum sem þarf til að lifa af. Samt sem áður verða þær byrgði á fjölskyldunni og samfélaginu þegar þær eldast og þurfa oftar en ekki að sjá um sig sjálfar í hárri elli. Sumar þeirra sjá jafnvel ennþá um barnauppeldið þrátt fyrir háan aldur. Það er nú einhvernveginn þannig með okkur mæðurnar að ábyrgðartilfinningin og kærleikurinn til barna okkur kemur alltaf á undan okkar eigin þörfum og löngunum. Þessi móðurtilfinning breytist ekkert þrátt fyrir aldur, heimshluta eða kynþætti. Hún er einfaldlega sterkari en flest annað. |
| Í suðvestur hluta Bangladesh, í nágreni borgarinnar Khulna, er lítið þorp. Þar búa nokkrar ekkjur og fátækar fjölskyldur sem Albert hefur hjálpað. Reyndar hjálpar hann fjölskyldum í mörgum þorpum víða í Bangladesh en þetta er þorpið sem við heimsóttum. | |
![]() Hrísgrjón sigtuð
|
![]() Konur á hrísgrjónaakrinum
|
![]() Erdna í hópi innfæddra
|
![]() Kona með bar á brjósti
|
Tágakarfa fléttuð
|
![]() Skólabörn
|
Markmiðið með aðstoðinni er að gera fólk sjálfstætt og sjálfbært.
Verkefnið er einfalt. Hver fjölskylda getur sótt um lán til kaupa á
einu ungu dýri (kálfur, lamb, kiðlingur, grís eða hæna). Fjölskyldan elur dýrið í u.þ.b. 6 - 8 mánuði. Þá er það selt fyrir tvöfalt eða þrefalt það verð sem dýrið kostaði upphaflega. Þá greiðir fólkið upphaflega lánið til baka, vaxtalaust, og heldur svo restinni. Flestir nýta sér þessa leið til að kosta börnin sín í skóla Margir kaupa t.d. kiðling eða lamb og þegar búið er að selja dýrið aftur er keypt ein hæna til að verpa eggjum svo fjölskyldan getur selt eggin. Hver fjölskylda getur sótt um lán aftur um leið og búið er að greiða fyrir gamla lánið sem er yfirleitt að andvirði 400-1000 Íkr. |
| Þetta verkefni gengur vel því með þessum hætti er ekki verið að gera
fjölskyldurnar háðar aðstoðinni og fólk upplifir heldur ekki að það sé
að þiggja ölmusu. Hver og einn er einfaldlega að fá lán til að koma
undir sig fótunum og verða sjálfstæður og geta séð um sig sjálfur. Eina
vandamálið er að þörfin er margfalt meiri en fjármagnið sem Albert og
hjálparstarfið hans hefur yfir að ráða. |
|
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
| Og þar vilja JesúKonur á Íslandi koma inn og aðstoða. Mánaðarlega leggjum við til hliðar inná sérstakan reikning 10% af innkomu starfsins okkar. Einu sinni til tvisvar á ári munum við svo senda upphæðina til Alberts, sem sér um að koma peningunum til þeirra sem þurfa mest á því að halda hverju sinni. Með þessum hætti styðjum við þá sem að örðum kosti hafa litla sem enga burði til að komast af. Allir geta verið með. |
![]() Kona að þvo þvott
|
Megi Drottinn blessa peningana sem koma inn í þetta verkefni.
















