Konur hjálpa konum
Er verkefni sem JesúKonur á Íslandi ætla að hrinda af stað til að auka lífsgæði kvenna í þróunarlöndunum.
Þrátt fyrir misjafnar aðstæður hérlendis hefur Guð samt blessað okkur á svo margan hátt. Við höfum nóg af hreinu vatni, mat, örugg og velbyggð hús, heilbrigði og góða menntun, og almennt séð höfum við efni á að gera margt sem okkur langar til að gera.
Lífsgæðunum er ekki jafn skipt í heiminum og þess vegna vilja JesúKonur láta til sín taka og blessa frá sér af því sem Guð hefur blessað okkur með.
Í Matteusi 25 kafla og versum 35-36 og 40 er Jesús að útskíra fyrir lærisveinum sínum mikilvægi þess að hjálpa þeim sem eiga erfitt eða eru sjúkir.
Því hungraður var ég og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég og þér hýstuð mig, nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér vitjuðuð mín, í fangelsi var ég og þér komuð til mín.
Sannlega segi ég yður: Allt sem þér gerðuð einum minna minnstu bræðra, það hafið þér gert mér.
Við vitum að margt smátt getur gert kraftaverk fyrir þá sem njóta góðs af gjöfum okkar.
Þú geur lesið meira um verkefnið Konur hjálpa konum hér.

| Ekkjurnar í Bangladesh |