Hvað eru Mæður Í Bæn?

Mæður í bæn eru  alþjóleg samtök sem eru í yfir 120 löndum víða um heim með fjölda bænahópa.
Stofnandi MITI (Moms in touch international) er Fern Nichols. Vitnisburður hennar er yndislegur og þú getur lesið hann hér. Á ákveðnum tíma í lífi hennar kallaði hún saman mæður í sínu hverfi til að biðja fyrir börnunum sínum og skólanum þegar hennar börn voru lítil. 
 
Fréttir um bænahópinn fóru fljótt að breiðast út og áður en langt umleið hafði Guð reist um margar mæður til að taka stöðu sína í bæn fyrirsínum börnum og skólum.

Mæður í bæn eru mæður sem hittast einu sinni í viku til að biðja fyrir börnunum sínum og skólanum þeirra, kennurum og öðru starfsfólki skólans.  

Mæður í bæn biðja ekki í skólanum heldur fyrir skólanum.

Mæður, ömmur, frænkur og allar konur sem eru tilbúnar að biðja fyrir börnum og skólanum þeirra.
Mæður sem eru fullvissar um þá staðreynd að bæn breytir kringumstæðum.

Í hnotskurn
Mæður Í Bæn eru:
*Tvær eða fleiri mæður/konur sem hittast vikulega til að biðja fyrir börnum, kennurum, skólastjórnendum og skólanum í sínu hverfi.
*Allar eigum við eða tengjumst börnum sem eru í skóla og viljum biðja fyrir okkar barni.
*Mæður sem biðja fyrir öllum skólum, leikskólum grunnskólum, framhaldsskólum og háskólum.

Við þroskumst andlega við markvisst og kröftugt bænalíf.


Tengiliður fyrir Mæður Í Bæn á Íslandi er Ásdís Margrét Rafnsdóttir. Hún hefur netfangið mib@jesukonur.is


Heimasíða Moms In Touch International er www.momsintouch.org



 Markmið og tilgangur  
 Hvernig byrja ég með hóp? 
  Bæklingur og bænaeyðublað


Flettingar í dag: 43
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 63
Gestir í gær: 23
Samtals flettingar: 131825
Samtals gestir: 40145
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 19:06:36