Beryl McNamee
|
Beryl McNamee fæddist á norður Írlandi en býr nú í Brussel. Hún hefur
alltaf þráð að hvetja og greiða veg kvenna. Hún byrjaði sem
deildarforseti kvennadeildar í the Bible Institue í Portugal
og varð
síðan ritstjóri Concept Femme en það er tímarit sem gefið er
út á
frönsku fyrir konur og fjölskyldur. Árið 1997 stofnaði Beryl alheimsnet fyrirbiðjenda í gegnum internetið, þjónustu sem leitast við að tengja konur í fyrirbæn fyrir þjóðum heims. Þetta þróaðist í að tengja konur frá Evrópu og víðar í virkt tengslanet með áherslu á bæn fyrir andlegri og pólitískri forystu frá einu landi til annars. Tengslanetið hefur breiðst hratt út og er fjöldi kristinna einstaklinga í Evrópu virkur í að biðja fyrir landi sínu og þjóð. Beryl trúir því að við höfum fengið umboð til að biðja fyrir sveitastjórnum og ríkisstjórnum og að bjóða fram aðstoð okkar til þeirra sem gegna áhrifastöðum á hvaða hátt sem er. |
Beryl hefur ásamt eiginmanni sínum stutt dyggilega við kristilegt starf á Balkanskaga og hafa þau unnið mikið ómetanlegt starf þar í gegnum árin.
Beryl kennir sálfræði og er þroski barna sérsvið hennar. Hún er gift og á tvær dætur og einn ömmustrák.
