Fréttir frá Mæður í bæn

Sælar allar

Hér koma fréttir frá Mæður í bæn á Íslandi. 

Eins og þið flestar vitið eru starfandi Mæður í bæn bænahópar á Íslandi og víða erlendis.  Á Íslandi erum við komnar með fjóra starfandi bænahópa sem eru staðsettir í Norðlingaholti (Reykjavík), Mosfellsbæ, Hafnarfirði og á Akureyri. 

Mæður í bæn er hópur af konum sem biðja saman vikulega fyrir börnum sínum, kennurum þeirra, skólum þeirra, félögum og fleiru sem við kemur börnunum okkar.  Það er yndislegt að hittast vikulega og fela Guði öll þessi málefni sem liggja á hjarta okkar varðandi börnin. 

Sjálf er ég í bænahópnum í Mosfellsbæ og erum við búnar að sjá talsvert mikið af bænasvörum fyrir börnin okkar.  T.d. lækningu á barni sem þurfti ekki lengur að fara í skurðaðgerð, breytingu á hegðun barnanna og fleira.  Fyrir utan það að við séum að biðja saman stöndum við saman líka.

Ég hvet þig sem les þetta að leita Guðs með það hvort að einmitt þú eigir að hefja bænahóp í þínu hverfi?  Það sem þú getur gert er að leita Guðs og biðja hann um að sýna þér aðra konu/aðrar konur í hverfinu sem myndu vilja taka þátt með þér.

Á sumrin og í t.d. jóla- og páskafríum er hópurinn ekki starfræktur heldur fylgir hann skólaári barna okkar. 

Það er gaman að segja frá því að í Bandaríkjunum eru konur sem biðja fyrir okkur og hópunum okkar.  Við erum í góðu sambandi við tvær konur þar sem heita Sally og Cristy en þær hjálpa okkur, aðstoða og biðja fyrir okkur.  Einnig er fylki í Bandaríkjunum sem biður fyrir okkur :)

Með bestu kveðjum frá Mæður í bæn, Ásdís Margrét Rafnsdóttir.
Ef þú vilt meiri upplýsingar eða byrja með Mæður í bæn hóp hafðu þá samband á póstfangið:
mib@jesukonur.is
Flettingar í dag: 43
Gestir í dag: 23
Flettingar í gær: 80
Gestir í gær: 26
Samtals flettingar: 141450
Samtals gestir: 43204
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 12:35:06